454. spurningaþraut: 99 milljón ára gamlar leifar af dýri einu — hvaða dýri?

454. spurningaþraut: 99 milljón ára gamlar leifar af dýri einu — hvaða dýri?

Fyrri auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und er flug­vélin sem hér sést? Hér þarf all­ná­kvæmt svar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða ríki kalla heima­menn Nippon?

2.  Einu sinni var skrifuð skáld­saga um karl sem lifði synd­sam­legu og illu lífi en þó sáust aldrei nein merki hins óholla líf­ernis á karl­inum. Ástæðan var sú að hann átti mál­verk af sér og mynd hans á mál­verk­inu varð gömul, hrukk­ótt, grimmd­ar­leg og ljót. Hvað hét karl­inn í sög­unni?

3.  Hver var höf­undur sög­unnar?

4.  Hann var um tíma dæmdur í fang­elsi. Hver var ástæðan fyrir fang­els­is­vist­inni?

5.  Þessi höf­undur orti líka ljóð og í íslenskri þýð­ingu á frægu kvæði eftir hann segir á þessa leið: „Allir drepa ...“ hvað??

6.  Í Hukawng-dal í Mianmar (sem nú heitir) gerð­ist það fyrir 99 millj­ónum ára að merki­leg trjá­kvoða („Kachin-kvoða“) rann yfir og drekkti lík­ama dýrs nokk­urs, sem síðan varð­veitt­ist heilt í kvoð­unni öll þau tæp­lega 100 milljón ár sem síðan eru liðin. Líkami dýrs­ins í kvoð­unni eru elstu leifar þessa dýrs sem varð­veist hafa. Það er sem sagt ansi gam­alt í hett­unni. Oft fer lítið fyrir dýr­inu en það hefur þó vakið nokkra athygli upp á síðkastið. Á lat­ínu kall­ast dýrið „ceratopogonidae culicoides“ en hvað heitir það á íslensku?

7.  Í landi er borgin Cork?

8.  Talia Shire heitir banda­rísk leik­kona sem nú er orðin 75 ára en vann sér til frægðar að leika stór hlut­verk í tveimur af kunn­ustu bíó­mynda­ser­íum Banda­ríkj­anna á ofan­verðri síð­ustu öld. Hvaða ser­íur voru það? Nefna þarf báðar.

9.  Nicole Kidman heitir önnur leik­kona. Hún var einu sinni gift furðu­fugli einum sem heitir ...

10.  Verðandi eig­in­kona hvaða þýska nas­ista­leið­toga kom til Íslands í skemmti­ferð sum­arið 1939, skömmu áður en síð­ari heims­styrj­öldin hófst?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hvað heitir eyja­klas­inn sem sjá má hér fyrir (nokkurn veg­inn) miðri mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Japan.

2.  Dorian Gray.

3.  Oscar Wilde.

4.  Sam­kyn­hneigð.

5.  „... yndið sitt.“

6.  Lúsmý.

7.  Írlandi.

8.  Hún lék í Guðföður-mynd­unum og Rocky-mynd­unum.

9.  Tom Cruise.

10.  Hitlers.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Boeing 747. Númerið verður að vera rétt.

Á neðri mynd­inn eru Hjaltlandseyjar í miðið (nokkurn veg­inn) en neðst vinstra megin sér í Orkn­eyjar og lengst til hægri í Noreg. Hið enska heiti þeirra, Shetland, er líka gjald­gengt.

Á mynd­inni hér má sjá eyj­arnar í miðið og nágranna­löndin, Ísland efst til vinstri.

Hér að neðan eru svo hlekkir á aðrar þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár