453. spurningaþraut: Leikurinn gerist í litlum bæ

453. spurningaþraut: Leikurinn gerist í litlum bæ

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hétu synir Nóa, þess er örk­ina byggði?

2.  Eftir að Nóa­flóðið sjatn­aði vildi svo til einu sinni að Nói bölv­aði einum syni sínum og öllum hans afkom­endum. Hvað hafði son­ur­inn gert af sér að mati Nóa?

3.  Undir hvaða nafni er Sidd­hārtha Gautama þekkt­astur?

4.  Þegar enska fót­boltalands­liðið hélt á EM um dag­inn gaf hljóm­sveit ein út lag til stuðn­ings lið­inu. Lagið heitir:  „Southgate, You're the One (Football's Coming Home Again)“ og er end­ur­gerð á vin­sælu lagi hljóm­sveit­ar­innar frá árinu 2000, „Whole Again“. Hljóm­sveitin hefur lengst af verið tríó og þegar EM-lagið var gefið út gekk Jenny Frost aftur í sveit­ina eftir nokk­urt hlé. Hvað heitir hljóm­sveitin?

5.  Öðru­hvoru síð­ustu ár hafa borist fregnir af því að síld hafi hrann­ast inn í fjörð einn hér við land og drep­ist í massa­vís af súr­efn­is­skorti. Hvað heitir fjörð­ur­inn?

6.  En hvar á land­inu er hann?

7.  Leik­ur­inn ger­ist í litlum bæ þar sem lögum og reglum er kastað á glæ. Hvern var reynt að fá til að róa liðið?

8.  Immanuel Kant, Georg Wilhelm Friedrich Hegel, Arthur Schopenhauer, Gott­fried Wilhelm Leibniz, Edmund Husserl, Martin Heidegger voru allir Þjóð­verjar. En hvað feng­ust þeir allir við í líf­inu?

9.  Eswatini heitir ríki eitt í Afríku en fram til árs­ins 2018 hét það allt öðru nafni. Hvað var gamla nafnið?

10.  Hverjir gefa út tíma­ritið Úlf­ljótur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan er brúð­kaups­mynd frá 1964. Hvað heita brúð­hjónin? Hafa þarf bæði nöfnin rétt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sem, Kam (eða Ham) og Jafet.

2.  Nói bölv­aði Kam vegna þess að hann hafði séð hann (Nóa) alls­beran. Það var mikil synd.

3.  Buddha.

4.  Atomic Kitten.

5.  Kolgraf­ar­fjörður.

6.  Snæ­fells­nesi.

7.  Roy Rogers. 

Halli og Laddi:Roy Rogers

8.  Þeir voru heim­spek­ingar.

9.  Swaziland.

10.  Laga­nemar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er söng­konan Taylor Swift.

Á neðri mynd­inni eru leik­ar­arnir Elizabeth Taylor og Richard Burton.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár