452. spurningaþraut: Íþróttafréttamaður, tveir forsetar, Jörðin og fleira

452. spurningaþraut: Íþróttafréttamaður, tveir forsetar, Jörðin og fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heita berin á mynd­inni hér að ofan — á íslensku? Margir þekkja enska nafnið á þeim en vér spyrjum sem sé um hið íslenska að þessu sinni.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Íþrótta­f­rétta­maður einn á miðjum aldri sem starf­aði fyrst lengi á Rík­is­út­varp­inu en síðan líka lengi á Stöð 2, hann hefur nú dúkkað upp sem vana­legur frétta­maður á RÚV. Hvað heitir hann?

2.  Dóttir hans hefur fetað í fót­spor föður síns sem íþrótta­f­rétta­maður. Hvað heitir hún?

3.  Og hún hefur líka ann­ast umsjón með gam­al­grónum og vin­sælum sjón­varps­þætti, sem ekki snýst um íþróttir. Hver er sá sjón­varps­þáttur?

4.  Í hvaða landi er fljótið Ob?

5.  Hvar var Jacob Zuma for­seti?

6.  Í hvaða borg eru píramíd­arnir miklu? Hér þarf hár­ná­kvæmt svar.

7.  Hann var aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna og síðan for­seti heima­lands síns, Aust­ur­ríkis. Þá kom upp úr dúrnum að hann átti sér ófagra for­tíð í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Hvað hét hann?

8.  Hvar í röð­inni að stærð (þver­máli) er Jörðin okkar í hópi reiki­stjarna sól­kerf­is­ins?

9.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Guyana?

10.  Fyrir hvaða stjórn­mála­flokk situr Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir á þingi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða lista­maður mál­aði verkið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Arnar Björns­son.

2.  Krist­jana.

3.  Gettu betur.

4.  Rúss­landi.

5.  Suður-Afríka.

6.  Giza. Sú borg er nú vaxin saman við höf­uð­borg­ina Kairó en telst þó enn sér­stök borg.

7.  Waldheim.

8.  Hún er sú fimmta.

9.  Suður-Ameríku. (Ýmis ríki sem heita Gínea eru hins vegar bæði í Afríku og Asíu.)

10.  Viðreisn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Berin á efri mynd­inni heita trönu­ber eða mýra­ber. Á ensku kall­ast þau cranberries.

Verkið á neðri mynd­inni mál­aði Mondrian.

***

Og gætið að hlekkjum ann­arra þrauta hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár