451. spurningaþraut: Nokkrir guðir og nokkrar gyðjur

451. spurningaþraut: Nokkrir guðir og nokkrar gyðjur

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver skrif­aði Heimskringlu?

2.  Á hvaða bæ var sá höf­undur síðar drep­inn?

3.  Carl Jung var braut­ryðj­andi í ... hverju?

4.  Hvaða drykkur hét Brad's Drink þegar hann birt­ist fyrst en skipti svo um nafn nokkrum árum síðar?

5.  Í hvaða landi eru Toyota-bílar upp­runnir?

6.  Nálægt stjörnu­þokunni okkar eru nokkrar litlar, en hvað heitir sú stóra stjörnu­þoka — jafn­stór og okkar — sem næst okkur er?

7.  Hvað er rangt í eft­ir­far­andi setn­ingu? — Helstu nor­rænu guð­irnir eru Óðinn aðal­guð, Þór þrumuguð, heim­il­is­guð­inn Frigg, Njörður sjáv­ar­guð, sendi- og varð­guð­inn Heimdallur, stríðguð­inn Týr, skálda­guð­inn Bragi og hinn óspillti Baldur en helstu gyðj­urnar eru ást­ar­gyðjan Freyja, meyj­ar­gyðjan Gefjun, korna­kra­gyðjan Sif og Iðunn epla­gæslu­gyðja.

8.  Í skáld­sögu Christine frá 1983 segir Stephen King frá nefndri Christine sem skemmir allt í kringum sig og hefur hin hræði­leg­ustu áhrif á bæði allt og alla. Hver er Christine?

9.  Í hvaða landi er borgin Lens?

10.  Hver var for­seti Banda­ríkj­anna meðan á borg­ara­stríð­inu 1861-1865 stóð?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Snorri Sturlu­son.

2.  Reyk­holti.

3.  Sálfræði.

4.  Pepsi.

5.  Japan.

6.  Andromeda.

7.  Frigg er gyðja, ekki karl­kyns guð.

8.  Bíll.

9.  Frakk­landi.

10.  Abraham Lincoln.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni býst Abraham til fórna Ísak syni sínum, sam­an­ber frá­sögn Gamla testa­ment­is­ins.

Á neðri mynd­inni má sjá söng­kon­una Marianne Fait­h­full.

***

Og lítið á þrautir hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár