450. spurningaþraut: Rithöfundar að þessu sinni, tómir rithöfundar

450. spurningaþraut: Rithöfundar að þessu sinni, tómir rithöfundar

Hér verður ein­göngu spurt um rit­höf­unda af marg­vís­legu tagi. Eft­ir­nöfn þeirra duga í öllum til­fellum, nema nátt­úr­lega ef ein­hverjir skyldu íslenskir vera.

Og fyrri auka­spurn­ing sýnir einmitt rit­höf­und. Hver er á mynd­inni fyrir ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Rit­höf­undur einn byrj­aði sögu á þessa leið: „Als Gregor Samsa eines Morgens aus unru­higen Träumen erwachte, fand er sich in seinem Bett zu einem ungeheu­eren Ungeziefer verwandelt.“ Hvaða höf­undur var þetta?

2.  Gone Girl hét sál­fræði­tryllir sem kom út árið 2013 og fór sann­ar­lega sig­ur­för um heim­inn og vin­sæl bíó­mynd var gerð eftir sög­unni. Hvað heitir höf­und­ur­inn?

3.  Barátta mín — það var nafnið á bók sem út kom 1925 og vakti ekki mjög mikla athygli þá, en hins vegar fór seinna svo að öll brúð­hjón í landi höf­und­ar­ins fengu bók­ina að gjöf frá rík­inu. Og höf­und­ur­inn varð múltim­illi á öllum höf­und­ar­laun­unum. Hver skrif­aði bók­ina?

4.  En Barátta mín var líka nafn á langri sjálfsævi­sögu sem norskur höf­undur gaf út í mörgum þykkum bindum fyrir rúmum ára­tug. Hvað heitir sá höf­undur?

5.  Árið 1969 fékk írskur höf­undur Nóbels­verð­laun og í með­fylgj­andi texta Nóbels­nefndar sagði að hann fengi verð­launin fyrir skrif sem „upp­hefja á nýstár­legan hátt í bæði skáld­sögum og leik­hús­verkum bjarg­ar­leysi nútíma­manns­ins“. Hvaða höf­undur var þetta?

6.  Annar höf­undur sem fékk Nóbels­verð­launin um miðjan sjötta ára­tug­inn var af Nóbels­nefnd­inni sagður fá verð­launin fyrir fjör­lega og kröft­uga sagna­list sem hafi end­ur­nýjað hina miklu sagna­hefð heima­lands hans. Hver var sá?

7.  Höfundur nokkur vakti fyrst athygli þegar hún skrif­aði smá­sögu um móður sem vill allt fyrir börnin sín gera og sker að lokum úr sér hjartað fyrir þau. Síðar skrif­aði hún bæði skáld­sögur og leik­rit og tók virkan þátt í stjórn­málum um skeið, sat meira að segja á Alþingi. Hvað hét hún?

8.  Cormoran Strike heitir aðal­per­sónan í flokki glæpa­sagna eftir Robert nokkurn Gal­braith. Út eru komnar fimm bækur um Strike en höf­und­ur­inn seg­ist hafa til­búið efni í tíu til við­bótar. Bækurnar þykja alveg prýði­legar en það er þó raun­veru­legt nafn höf­und­ar­ins sem hefur vakið mesta athygli á þeim. Hver leyn­ist bak við nafnið Robert Gal­braith?

9.  Árið 1983 kom út smá­sagna­safnið Tíu myndir úr lífi þínu, sögur um þykjustu­leiki og alvöru­drauma. Höfundur hefur síðan aðal­lega skrifað skáld­sögur, svo sem Z-Ást­ar­sögu, Stúllk­una í skóg­inum, Þögnina, Frá ljósi til ljóss og Þegar stjarna hrapar. En líka Dísusögu og Systu - bernsk­unnar vegna. Hver er höf­und­ur­inn?

10.  Árið 1973 kom út bók um stúlku eina sem olli íbúum í heimabæ sínum alls konar hörm­ungum og skaða — en þeir áttu það líka flestallir skilið, hel­vítin þau arna! Höf­und­ur­inn hefur síðan verið einn sá afkasta­mesti í heim­inum. Hvað heitir hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sjá konu eina, fædda 1845, sem var sann­kall­aður braut­ryðj­andi í skáld­skap í landi sínu og ekki aðeins af konu að vera. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Franz Kafka.

2.  Gillian Flynn.

3.  Adolf Hitler.

4.  Knaus­gaard.

5.  Beckett.

6.  Halldór Laxness.

7.  Svava Jak­obs­dóttir.

8.  Rowling.

9.  Vigdís Gríms­dóttir.

10.  Stephen King.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er ást­ar­sagna­höf­und­ur­inn Barbara Cartland.

Á neðri mynd­inni er Torf­hildur Hólm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár