449. spurningaþraut: Allir eru í fínu formi ...

449. spurningaþraut: Allir eru í fínu formi ...

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

***

1.  „Á meðan hann horfir á þig ertu María mey“, „Skegg Raspútíns“, „Ástin Texas“, „Sagan af sjó­reknu píanó­unum“, „Yosoy“, „Fyr­ir­lestur um ham­ingj­una“ eru allt bækur eftir ...?

2.  Billund heitir rúm­lega 6.000 manna þorp í Danmörku — en frægt vegna þess að þar hefur aðsetur ... hver eða hvað?

3.  Hvað er milli Þjórs­ár­vera og Kiðagils?

4.  „Allir eru í fínu formi, eng­inn nennir neinu dormi, því nóttin er löng þó að lífið sé stutt og allir fara í ...“ hvað?

5.  Í hvaða borg var John F. Kennedy Banda­ríkja­for­seti myrtur?

6.  Hvaða ár gerð­ist sá atburður?

7.  Unnur Jök­uls­dóttir gaf fyrir fjórum árum út bók sem fékk Íslensku bók­mennta­verð­launin í flokki fræði­rita. Bókin heitir Undur [xxx] — um fugla, flugur, fiska og fólk.  Um undur hvaða staðar er bókin?

8.  Wimbledon tennis­mót­inu lauk á dög­unum. Hver vann í ein­liða­leik karla?

9.  Ashley Barty vann hins vegar ein­liða­leik kvenna. Hún er í föð­ur­ætt komin af frum­byggjum í landi einu en í móð­ur­ætt af enskum inn­flytj­endum. Frá hvaða landi er hún?

10.  Hvað heitir sjón­varps­þátt­ur­inn sem Gísli Marteinn Bald­urs­son sér um á RÚV?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Guðrúnu Evu.

2.  Legó-fyr­ir­tækið.

3.  Sprengi­sandur.

4.  Sveita­ferð.

5.  Dallas.

6.  1963.

7.  Mývatns.

8.  Djokovic.

9.  Ástralíu.

10.  Vikan með Gísla Marteini.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er inn­rásin í Normandy 1944 að hefj­ast.

Á neðri mynd­inni er söng­konan Ella Fitzgerald.

***

Svo lítið á hlekk­inn á þraut­irnar hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár