458. spurningaþraut: Hér eigiði til dæmis að þekkja afar glæsilegt hús

458. spurningaþraut: Hér eigiði til dæmis að þekkja afar glæsilegt hús

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir sá með bláa hárið á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Miklar manna­breyt­ingar voru af ýmsum ástæðum í síð­ari rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem sat frá sumri 2009 og fram á sumar 2013. Fyrir utan Jóhönnu sjálfa sátu aðeins tveir ráð­herrar óslitið í sama emb­ætt­inu öll fjögur árin. Annar þess­ara ráð­herra var karl­kyns. Hver var það og hvaða ráð­herra­emb­ætti gegndi hann?

2.  Hinn þaul­setni ráð­herr­ann var kona. Hver var sú og hvers­konar ráð­herra?

3.  Fjórði ráð­herr­ann í rík­is­stjórn Jóhönnu var reyndar skráður í sama ráðu­neyti allan tím­ann en var í barn­eigna­leyfi hluta tím­ans. Hver var það og frá hvaða emb­ætti var ráð­herr­ann í leyfi?

4.  Í hvaða landi er borgin Hannover?

5.  Fyr­ir­bæri eitt er rakið aftur til árs­ins 776 fyrir Krist en það var við lýði í meira en þús­und ár. Síðast spurð­ist til þess laust fyrir miðja fimmtu öld eftir Krist. Svipað fyr­ir­bæri upp­hófst svo reyndar tæp­lega 1.500 árum síðar. Hvað er hér um að ræða?

6.  Daladier hét maður sem var um tíma for­sæt­is­ráð­herra í til­teknu landi. Tíð hans í því emb­ætti var reyndar mörkuð af ósigrum og mót­læti miklu og hann sat í fanga­búðum um tíma. Í hvaða landi var Daladier for­sæt­is­ráð­herra?

7.  Hver er breið­asta á í heimi?

8.  Og hve breið skyldi hún hafa verið þegar hún mæld­ist breið­ust? Hér má muna kíló­metra til eða frá.

9.  Fyrst er getið um fæðu­teg­und eina í opin­berri skýrslu frá árinu 997 þar sem leigu­liða bisk­ups­ins í ítalska bænum Gaeta er upp­álagt að færa bisk­upnum tólf stykki af þess­ari fæðu á jóla­dag og önnur tólf stykki á pásk­unum. Hvað er hér um að ræða?

10.  Hvað eru kló­sigar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist húsið á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Össur Skarp­héð­ins­son utan­rík­is­ráð­herra.

2.  Svandís Svav­ars­dóttir umhverf­is­ráð­herra.

3.  Katrín Jak­obs­dóttir mennta­mála­ráð­herra.

4.  Þýska­landi.

5.  Ólymp­íu­leik­arnir.

6.  Frakk­landi. Hann gegndi emb­ætti í upp­hafi síð­ari heims­styrj­aldar.

7.  Amazon-fljótið í Suður-Ameríku.

8.  Ellefu kíló­metrar, svo rétt er allt frá 10-12 kíló­metrum.

9.  Pizza.

10.  Skýja­teg­und.

Klósigar

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Milhouse heitir pilt­ur­inn á efri mynd­inni.

Á neðri mynd­inni er sjálf Vetr­ar­höllin í Pét­urs­borg.

***

Og hér að neðan eru hlekkir á fleiri þrautir, fyrr og síðar!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár