459. spurningaþraut: Bíómynd á Cannes og hvar bjuggu Olmecar?

459. spurningaþraut: Bíómynd á Cannes og hvar bjuggu Olmecar?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að ofan, ung að árum?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir bíó­mynd Valdi­mars Jóhanns­sonar sem frum­sýnd var á Cannes-hátíð­inni fyrir skömmu?

2.  Cannes er smá­borg í Frakk­land, eig­in­lega útborg fimmtu fjöl­menn­ustu borgar Frakk­lands, sem heitir ...?

3.  Hvaða erlenda ríki er næst Cannes?

4.  Skaft­ár­jök­ull er skrið­jök­ull sem fellur úr hvaða stærra jökli?

5.  Hvaða rit­höf­undur gaf út end­ur­minn­ingar sínar á árunum 1959-1962, alls fjögur bindi sem báru titl­ana Ísold hin svarta, Dægrin blá, Loginn hvíti og Ísold hin gullna?

6.  Árið 2009 eign­að­ist tíkin Tia af Mastiff-teg­und hvolpa og komst í heims­meta­bók Guinness fyrir fjölda þeirra. Engin tík hefur eign­ast fleiri hvolpa svo skráð sé. Hve margir voru hvolpar Tiu? Hér má muna einum til eða frá.

7.  Í hvaða núver­andi ríki voru lendur hinna svo­nefndu Olmeca (að mestu) á árunum 2500-500 fyrir Krist?

8.  Fyrir utan annað sem Olmecar tóku sér fyrir hendur, þá virð­ast þeir hafa verið fyrstir til að hag­nýta sér jurt eina sem óx á svæði þeirra. Þeir bjuggu til bæði drykk og fasta fæðu úr fræjum jurt­ar­innar. Þetta þótti og þykir enn ansi gott. Hvað var þetta?

9.  Í hvaða sjón­varps­þáttum fyrr á tíð lék ill­mennið JR lausum hala?

10.  Hver hefur stýrt hinum svo­nefnda brekku­söng í Vest­manna­eyjum oftar en nokkur annar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir dýrið á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Lamb, eða Dýrið.

2.  Nice.

3.  Monaco.

4.  Vatna­jökli.

5.  Krist­mann Guð­munds­son.

6.  Þeir voru 24, svo rétt telst vera 23-25.

7.  Mexíkó.

8.  Kakó, súkkulaði. Hvorttveggja má vera rétt.

9.  Dallas.

10.  Árni Johnsen.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir skáld­kona.

Á neðri mynd­inni er stærsta sela­teg­undin, sæfíll.

***

Lítið á hlekk­ina hér að neðan, ef ykkur vantar fleiri spurn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár