460. spurningaþraut: Tíu spurningar og lárviðarstig um Halldór Laxness!

460. spurningaþraut: Tíu spurningar og lárviðarstig um Halldór Laxness!

Að þessu er þema þraut­ar­innar Halldór Laxness, verk hans og umhverfi.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét faðir Halldórs? Skírn­ar­nafn hans dugar.

2.  En móðir hans? Aftur dugar skírn­ar­nafnið.

3.  Hvað hét fyrsta skáld­saga hans, sem Halldór gaf út aðeins 17 ára gam­all?

4.  Hvað heitir skáldsagan þar sem fjallað er um Bjart í Sum­ar­húsum?

5.  Hvaða útgerð­ar­manni er lýst af allra mestri samúð og skiln­ingi og jafn­vel ástúð í skáld­sögum Halldórs?

6.  Hver er „Atóm­stöðin“ sem fjallað er um í sam­nefndri skáld­sögu Halldórs? 

7.  Jón Prímus er per­sóna í sög­unni Kristni­hald undir jökli. Hann er sókn­ar­prestur en alkunnur í sveit sinni fyrir að gera við ... hvað?

8.  Í tún­inu heima hét hin fyrsta af fjórum end­ur­minn­inga­bókum sem Halldór gaf út um æskuár sína. Hún kom út 1975 og síðan þrjár til við­bótar næstu árin. Nefnið tvær þeirra.

9.  Hvað hét sú bók Halldórs sem út kom 1963 og hefur að geyma upp­gjör hans við Stalín og Sov­ét­ríkin og eigin skoð­anir á komm­ún­isma þeim sem þar eystra var praktíser­aður?

10.  Halldór fékk Nóbels­verð­launin árið 1955. Á undan honum fékk verð­launin hressi­legur og aðsóps­mik­ill banda­rískur höf­undur. Hvað hét hann? Þið megið svo sæma ykkur lár­við­ar­stigi ef þið vitið nafn höf­und­ar­ins sem fékk Nóbels­verð­launin ári á EFTIR Halldóri. 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan hér að neðan og hver voru tengsl hennar við Halldór?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Guðjón.

2.  Sigríður.

3.  Barn nátt­úr­unnar.

4.  Sjálf­stætt fólk.

5.  Þetta er hálf­gerð "trikk" spurn­ing, aldrei þessu vant. Svarið er Salka Valka. Sumir kynnu að vilja svara Íslands­bersi, sem er sögu­hetjan í Guðs­gjaf­ar­þulu, en spurn­ingin er um hvaða útgerð­ar­manni er lýst af MESTRI samúð etc., og þar kemur aðeins Salka Valka til greina. Í síð­ari hluta sam­nefndrar bókar er henni hvað eftir annað lýst sem „útgerð­ar­manni“ og það kallar hún sig líka sjálf.

6.  Herstöð Banda­ríkja­manna (eða NATO) á Kefla­vík­ur­flug­velli.

7.  Prímusa.

8.  Úngur ég var, Sjömeist­ara­sagan, Grikk­landsárið. Hafa þarf sem sagt nöfn tveggja rétt.

9.  Skálda­tími.

10.  Hemingway. Og lár­við­ar­stigið fæst fyrir að vita að árið 1956 fékk Spán­verj­inn Jiménez Nóbels­verð­laun.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Halldór að skír­ast til kaþ­ólskrar trúar.

Á neðri mynd­inni má sjá Ingu Laxness, fyrri eig­in­konu skálds­ins.

***

Og lítið á þraut­irnar hér að neðan — að gamni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár