461. spurningaþraut: Að spila á píanó fyrir fjóra syngjandi karla

461. spurningaþraut: Að spila á píanó fyrir fjóra syngjandi karla

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan sem situr hér og leikur á píanó undir fögrum söng fjög­urra karla? (Kannski sjást þeir ekki allir í sumum tækjum, en treystið mér: þeir eru fjórir. Aftur á móti er hrein ágiskun hjá mér að söng­ur­inn sé fagur.)

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Computer says no“ eða „tölvan segir nei“ er núorðið alkunnur frasi sem felur í sér að ekki sé hægt að breyta neinu í fyr­ir­fram nið­ur­njörv­uðu skipu­lagi. Hvar sló þessi frasi fyrst ræki­lega í gegn?

2.  „Saimaa“ heitir stöðu­vatn eitt sem er stærsta vatnið í til­teknu landi og um leið fjórða stærsta nátt­úru­lega stöðu­vatnið í Evrópu sem í er ein­göngu fersk­vatn og er ekki uppi­stöðu­lón af neinu tagi. Í hvaða landi er Saimaa?

3.  Hver er for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins sem berst fyrir því að stjórn­ar­skrár­frum­varp Stjórn­laga­ráðs verði grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár?

4.  Gunn­bjarn­ar­fjall er eitt af hærri fjöllum á norð­ur­hveli Jarðar ef Himalaja-fjöll eru und­an­skilin. Það er 3.694 metrar á hæð. Hvar er þetta fjall að finna?

5.  Hvað heitir prinsessan í hinni tæp­lega 30 ára gömlu Disney-teikni­mynd um Alladín?

6.  Hvernig er kryddið túr­merik á lit­inn, full­unnið? Svarið þarf ekki að vera hár­ná­kvæmt.

7.  Hvaða tón­list­ar­maður og sam­nefnd hljóm­sveit slógu í gegn með lagið Yfir borg­ina?

8.  Flug­fé­lag eitt, sem var að hluta í eigu Íslend­inga, var nýlega þjóð­nýtt í Afr­íku­ríki einu. Hvaða ríki?

9.  Mastodon kall­ast dýr eitt, útdautt fyrir um tíu þús­und árum, og við þekkjum það því ein­göngu af beina­leifum og stein­gerv­ingum. Hvaða núlif­andi dýri var mastodon skyld­ast?

10.  Hvaða þétt­býl­is­staður á Íslandi var svo tengdur frönskum sjó­mönnum fyrr á tíð að sum götu­nöfn eru þar enn bæði á frönsku og íslensku?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða torg má sjá á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Í sjón­varps­þátt­unum Little Britain.

2.  Finn­landi.

3.  Katrín Odds­dóttir.

4.  Á Græn­landi.

5.  Jasmín.

6.  Gult. Það dugar.

7.  Valdimar.

8.  Á Græn­höfða­eyjum.

9.  Fílnum.

10.  Þetta er Fáskrúðs­fjörður.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni leikur Margaret Thatcher á píanóið.

Á neðri mynd­inni má sjá Tian­an­men-torg í Bejing, öðru nafni Torg-hins-himneska-friðar.

Torgið er svo stórt að bygg­ingin sem hér sést er litli rauð­leiti kass­inn neðst á mynd­inni hér örlítið ofar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár