462. spurningaþraut: Hvaðan komu þrjár dularfullar vígvélar?

462. spurningaþraut: Hvaðan komu þrjár dularfullar vígvélar?

Þessi fyrsta þraut ágúst­mán­aðar hefst á plöntu­fræðum. Á mynd­inni hér að ofan má sjá lit­rík blóm plöntu sem kall­ast ....?

Tekið skal fram að algeng­asta nafn þess­arar plöntu er í raun­inni erlent töku­orð, en þið megið sæma ykkur lár­við­ar­stigi ef þið þekkið hið ramm­ís­lenska nafn hennar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í tveimur vin­sælum hryll­ings­myndum sem heita á ensku A Quiet Place á veik­burða mann­fólk í höggi við ótta­leg skrímsli — en skrímslin treysta alveg sér­stak­lega á eitt skiln­ing­ar­vit og eitt skyn­færi öðrum framar. Hvað er það?

2.  Hvað heitir söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Coldplay?

3.  Sá söngv­ari var í tæp 15 ára kvæntur vin­sælli amer­ískri leikkonu sem fékk Ósk­arsverð­laun fyrir aðal­hlut­verk sitt í kvik­mynd­inni Shakespe­are in Love árið 1999. Og hún heitir ...?

4.  Feður og synir er fræg rúss­nesk skáld­saga frá 19. öld. Hver skrif­aði hana?

5.  Sú saga var ekki síst fræg vegna þess að þar var einna fyrst fjallað um eins­konar lífs­stefnu sem fólst í að vilja rífa niður allar hefðir, allt stjórn­kerfi, allt sið­ferði, alla umgjörð sam­fé­lags­ins, því þetta væri allt einskis vert húm­búkk. Og ekk­ert sér­stakt átti að koma í stað­inn. Hvað var þessi speki kölluð — og er enn?

6.  Hvað var borgin Istanbúl kölluð áður en það nafn var tekið upp?

7.  Hvaða fyr­ir­tæki teng­ist Arna McClure?

8.  Hvað heitir þjálf­ari karla­liðs KR í fót­bolta um þessar mundir?

9.  Hver svaf í rúm­inu mínu?

10.  Hver samdi óper­una Rigo­letto?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Myndin hér að neðan er úr teikni­mynda­sögu sem gerð var eftir víð­frægri skáld­sögu sem kom út fyrir vel rúm­lega hund­rað árum. Hvaðan komu hinar þrí­fættu víg­vélar sem þarna stefna til London?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Heyrnina.

2.  Chris Martin. Eft­ir­nafnið dugar.

3.  Gwyneth Paltrow.

4.  Turgenev.

5.  Nihil­ismi — „nihil“ er lat­ína og þýðir „ekk­ert“.

6.  Kon­stant­ínópel.

7.  Samherja.

8.  Rúnar Krist­ins­son.

9.  Gullbrá.

10.  Verdi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru krýsan­temur.

Lár­við­ar­stig fæst fyrir að vita að þau heita víst tryggða­blóm á íslensku.

Víg­vél­arnar á neðri mynd­inni koma frá Mars því senan er úr skáld­sög­unni Innrásin frá Mars (The War of the Worlds) eftir H.G.Wells.

Lítið svo á hlekk­ina hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár