463. spurningaþraut: Hér er óvenju mikið um tónlist af öllu tagi

463. spurningaþraut: Hér er óvenju mikið um tónlist af öllu tagi

Á efri mynd­inni má sjá einn af leik­mönnum fót­boltaliðs Bayern München. Hvað heitir konan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  The Blockheads heitir hljóm­sveit á Bret­landi, sem víðkunn er fyrir gleði­söng­inn ódauð­lega frá 1978, Hit Me with Your Rhythm Stick. Hljóm­sveitin heldur áfram að flytja þetta lag (og fleiri) við stöðug fagn­að­ar­læti, þótt aðal­söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar hafi dáið úr krabba­meini fyrir 21 ári. Hvað hét hann?

2.  Önnur bresk gleði­hljóm­sveit er Madness. Sú hljóm­sveit er kunn fyrir fjör­lega tón­list­ar­stefnu sem kom fram í dags­ljósið á Jamaica á sjötta ára­tugnum og má líta á sem fyr­ir­renn­ara reggí-tón­listar. Hvað kall­ast þessi tón­list­ar­stefna?

3.  Og í einu allra fræg­asta lagi hljóm­sveit­ar­innar Madness er sungið af mik­illi nautn: „Welcome to the house of ...“ House of hvað?

4.  Í frægri bók segir frá því þegar hús­freyjur tvær lentu í svo grimmri sam­keppni að vinnu­menn þeirra drápu hver annan til skiptis. Hver er sú bók?

5.  Fleiri en eitt tón­skáld munu hafa samið verk sem nefnd­ust Árs­tíð­irnar fjórar. En hver samdi fræg­ustu útgáf­una?

6.  „Við vöknum ekki fyrir minna en 10.000 doll­ara á dag,“ sagði kona ein árið 1990 um sig og vin­konu sína. Konan heitir Linda Evang­elista en fyrir hvað fékk hún svona vel borgað?

7.  Hvað var kallað „spóna­matur“ á Íslandi fyrr á tíð? 

8.  Í hvaða sýslu eða sýslum er stöðu­vatnið Hópið, sem nálg­ast það reyndar að vera sjáv­ar­lón?

9.  Je t'aime ... moi non plus heitir frægt lag frá 1967 sem varð umdeilt vegna þess að munúð­ar­full and­vörp söng­kon­unnar þóttu benda til að eitt­hvað gengi á í stúd­íó­inu. Hvaða söng­kona flutti fræg­ustu og útbreidd­ustu útgáfu þessa lags ásamt höf­und­inum Serge Gainsbourg?

10.  Raunin var þó sú að önnur kona — köllum hana X — hafði tekið upp lagið með Gainsbourg á undan þeirri söng­konu sem spurt var um hér að ofan. Lagið var meira að segja samið fyrir X, en þáver­andi eig­in­maður hennar reidd­ist yfir að heyra konu sína stynja svona opin­ber­lega að sú fyrsta útgáfa lags­ins var tekin úr umferð. Hvað hét X sem söng eða and­varp­aði Je t'aime fyrst af öllum?

 

***

Síðari mynda­spurn­ing:

Hver er karl þessi sem mynd þessa hér að neðan prýðir?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ian Dury.

Sjá hér Hit me ...

2.  Ska — nefn­ist sú tón­list­ar­stefna.

3.  Fun.

Sjá hér House of Fun

 

4.  Njála.

5.  Vivaldi.

6.  Hún var fyr­ir­sæta.

7.  Grautar, skyr, súpur ... allt sem borðað var með spóni, það er að segja skeið.

8.  Húna­vatns­sýslu eða -sýslum.

9.  Jane Birkin.

Je t'aime ... með Birkin

10.  Brigitte Bardot.

Bardot syngur Je t'aime

***

Hér að ofan má á efri mynd sjá hinn sterka varn­ar­mann, Glódísi Perlu, sem leikur með íslenska lands­lið­inu auk meist­ara Þýska­lands, Bayern München.

Á neðri mynd­inni er mynd­höggv­ar­inn Berthel Thor­vald­sen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár