464. spurningaþraut: Hér berst Trójustríðið í tal, ekki í fyrsta sinn

464. spurningaþraut: Hér berst Trójustríðið í tal, ekki í fyrsta sinn

Fyrri mynda­spurn­ing:

Skoðið mynd­ina hér að ofan mjög vand­lega. Hvaða staður er þarna milli ánna fyrir miðri mynd?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Ekki er 17. júní í dag, en þó má spyrja, hver samdi text­ann ódauð­lega: „Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei, það er kom­inn 17. júní.“

2.  Hvaða hljóm­sveit flutti þetta lag upp­haf­lega?

3.  Hvað heitir ströndin norðan Ísa­fjarð­ar­djúps?

4.  Hversu margir eru þing­menn banda­rísku öld­unga­deild­ar­innar?

5.  Hvað heitir fylkið eða hér­aðið sem umlykur Berlín, höf­uð­borg Þýska­lands?

6.  Höf­uð­borg þessa fylkis er nú nán­ast runnin saman við Berlín en telst þó enn aðskilin borg. Þar hefur líka ýmis­legt merki­legt gerst, til dæmis frægur fundur fyrir hátt í 80 árum. Hvað heitir þessi höf­uð­borg?

7.  Hvar gaus í Skaft­ár­eldum?

8.  Fyrr­ver­andi þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er nú ráðu­neyt­is­stóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og heitir ...?

9.  Hver hefur bíl­núm­erið 313?

10.  Á hvaða tungu­máli var ort um Tróju­stríðið?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hvaða ágæta nytja­fisk má hér sjá að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bjartmar Hlynur Hann­es­son. Hér hélt ég að rétta svarið væri Guð­laugs­son, enda gáði ég sér­stak­lega að þessu á net­inu, og sá ekki ástæðu til að efast um 2-3 heim­ildir sem nefndu Bjartmar Guð­laugs­son til sögu.

2.  Dúmbó og Steini. Hér var líka vit­laust svar í önd­verðu.

3.  Snæfjalla­strönd.

4.  100.

5.  Brand­en­burg.

6.  Potsdam.

7.  Í Laka eða Laka­gígum.

8.  Bryndís Hlöðvers­dóttir.

9.  Andrés Önd.

10.  Grísku. Vilji menn svara „forn­grísku“, þá telst það líka rétt, enda er nútíma­gríska ekki alls­endis sama málið og Hómerskviður voru skrif­aðar á, en raunar munu forn­grískur hafa verið fleiri en ein!

***

Svör við auka- eða mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er rétt svar Man­hattan. Úr því spurt er sér­stak­lega um svæðið milli ánna, þá dugar New York ekki.

Á neðri mynd­inni er mak­ríll.

Og hér enn neðar eru hlekkir á fleiri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár