465. spurningaþraut: Hvaða fjall var klifið fyrst árið 1908?

465. spurningaþraut: Hvaða fjall var klifið fyrst árið 1908?

Fyrri mynda­spurn­ing:

Hvað heitir þessi fag­ur­lega stíg­vélaða kona?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á hvaða eyju er borgin Palermo?

2.  Á hvaða borgir í Japan hefur verið varpað kjarn­orku­sprengjum? Nefna verður báðar.

3.  Hvaða ríki til­heyra (lang­flestar) Aleuta-eyj­anna?

4.  Í hvaða grein var Anatolí Karpov heims­meist­ari í ára­tug?

5.  Hvaða tign­ar­lega fjall á Íslandi var klifið í fyrsta sinn svo vitað sé árið 1908 af þeim Sigurði Sum­ar­liða­syni og dr. Hans Reck?

6.  Hvað hét yngsti bróðir John F. Kennedys Banda­ríkja­for­seta?

7.  Á hvaða eyju er borgin Nicosia?

8.  „Ekki verður bók­vitið í ... hvað? ... látið.“

9.  Hvaða starfi gegndi Eiríkur Krist­ó­fers­son svo frægt varð á Íslandi á árunum upp úr 1958?

10.  Hljóð­færi eitt heitir á enskri tungu harpsichord. En hvað heitir það á íslensku?

*** 

Seinni mynda­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá sig­ur­lið MR í spurn­inga­keppni fram­halds­skól­anna 1988. Kepp­and­inn í miðið lærði síðar lög­fræði og varð hér­aðs­dóm­ari á Norð­ur­landi eystra og var sú skipan ekki óum­deild. Nú iðkar hann reyndar störf sín við hér­aðs­dóm­stól Reykja­ness. Hvað heitir hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sikiley.

2.  Hirosjima og Nagasaki.

3.  Banda­ríkj­unum.

4.  Skák.

5.  Herðu­breið.

6.  Edward.

7.  Kýpur.

8.  Askana.

9.  Skip­herra hjá Land­helg­is­gæsl­unni.

10.  Semball.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Nancy Sinatra.

Keppandi MR á neðri mynd­inni er Þor­steinn Dav­íðs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár