466. spurningaþraut: Hér eru nokkrar landafræðispurningar, sýnist mér

466. spurningaþraut: Hér eru nokkrar landafræðispurningar, sýnist mér

Báðar mynda­spurn­ing­arnar eru að þessu sinni úr landa­fræð­inni. Á mynd­inni hér að ofan er sól sem prýðir fána ríkis eins í ver­öld­inni. Mjög svipuð sól — þó með aðeins færri geislum — prýðir jafn­framt fána nágranna­ríkis. Hvað heita þessi tvö sól­ar­ríki — og já, bæði verður að nefna.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Coco Gauff heitir 17 ára banda­rísk íþrótta­stúlka sem ætl­aði að vera með á ólymp­íu­leik­unum í Tókíó en smit­að­ist af Covid-19 nokkru áður en leik­arnir áttu að hefj­ast. Gauff þykir einkar efni­leg og gæti á næstu árum kom­ist á topp­inn í ... hvaða íþrótta­grein?

2.  Úr því Tókíó barst í tal, þá skal hér upp­lýst að sú borg bar lengi framan af allt annað nafn. Það var ekki fyrr en 1868 sem nafn­inu borg­ar­innar var breytt í Tókíó. Hvað hét borgin áður?

3.  Góði dát­inn Sveijk heitir bók ein. Hvað heitir höf­und­ur­inn?

4.  Á hvaða tungu­máli var sagan skrifuð?

5.  Hver las íslenska þýð­ingu hennar í útvarpið svo að frá­bær rómur var gerður að?

6.  Hvaða tón­list­ar­maður náði gíf­ur­legum vin­sældum með lagið My Heart Will Go On árið 1997?

7.  Lagið skreytti kvik­mynd eina, sem einnig varð vin­sæl mjög. Hvaða mynd var það?

8.  Rit­höf­undur einn hefur vakið athygli fyrir snarpa pistla á Rás eitt Rík­is­út­varps­ins síð­ustu árin, en einnig fyrir bæk­urnar Vince Vaughn í skýj­unum, sem kom út árið 2013, Drón (2014), Aftur og aftur (2017) og Bróðir (2020). Hvað heitir höf­und­ur­inn?

9.  Hvað er það sem kall­ast süt á tyrk­nesku, gatas á taga­lok, mleko á sló­vensku, сүү á mongólsku, piim á eist­nesku, maiko á finnsku, şîr á kúrdísku, caaano á sómölsku, leche á spænsku og పాలు á telúgú sem talað er í Andra Pradesh á Indlandi?

10.  Hér fylgja á eftir nöfn á nokkrum mis­stórum þétt­býl­is­kjörnum á Suð­ur­landsund­ir­lend­inu. Nema hvað eitt nafn er EKKI þétt­býl­iskjarni á Suð­ur­landi: Braut­ar­holt, Flúðir, Laug­ar­bakki, Laugarás, Laug­ar­vatn,  Reykholt, Sól­heimar, Þykkvi­bær.

 ***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hvaða sögu­fræga stöðu­vatn er það sem sést hér ská­hallt úr suðri á Google Earth?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tennis.

2.  Edo.

3.  Hasek.

4.  Tékk­nesku.

5.  Gísli Hall­dórs­son.

6.  Celine Dion.

7.  Titanic.

8.  Halldór Armand.

9.  Mjólk.

10.  Laug­ar­bakki er á Norð­ur­landi vestra, alla hina stað­ina má finna á Suð­ur­landsund­ir­lend­inu (Reykholt líka!).

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Sólin á efri mynd­inni prýðir fána Argent­ínu en syst­ur­sól­ina er hins vegar að finna á fána Úrúgvæ.

Sjá hér:

Fáni Argent­ínu
Fáni Úrúgvæ

 ***

Á neðri mynd­inni er Galí­leu­vatn, einnig kallað Genes­ar­et­vatn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár