Hrelli- og barnaklámi dreift á síðu sem lögreglan nær ekki til

Nafn­lausir Íslend­ingar koma saman á grófu spjall­borði þar sem nekt­ar­myndum af fólki er dreift án leyfis og fólki í kyn­lífs­vinnu gefnar umsagnir. Reglu­lega er deilt eða óskað eftir myndum af nafn­greindum stúlkum undir lög­aldri. Lög­reglan fylgist með síð­unni og síðum þar sem vændi er aug­lýst.

Hrelli- og barnaklámi dreift á síðu sem lögreglan nær ekki til
Síða með grófu efni Skipt hefur verið um stjórn­endur á Slutchan og lög­reglu gengur nú verr að láta fjar­lægja þaðan efni.

Nafn­laust spjall­borð Íslend­inga á vef­síðu sem er utan lög­sögu lög­regl­unnar, en þar er dreift nekt­ar­myndum í óþökk þeirra sem mynd­irnar eru af. Reglu­lega eru birtar myndir af stúlkum á barns­aldri.

Á síð­unni er fjöldi spjall­þráða á íslensku, en not­endur síð­unnar eru nafn­lausir. Einn þráð­ur­inn fjallar um konur sem starfa í vændi á Íslandi og gefa þar not­end­urnir þeim umsagnir, bera saman verð og bestu leiðir til að láta ekki svindla á sér eða vera gripnir af lög­reglu, en í almennum hegn­ing­ar­lögum er lögð sekt eða fang­els­is­vist við kaupum á vændi.

Á öðrum þræði síð­unnar er listi yfir þær íslensku konur sem birta efni á OnlyFans gegn gjaldi, umræður um gæði þess sem þar er birt og ítrekað óskað eftir leiðum til að nálg­ast myndefni af þeim end­ur­gjalds­laust. Oft er orðið við þeim beiðnum og not­endur deila slíku myndefni sín á milli í gegnum skráa­skipta­síður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynlífsvinna á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár