Eina leiðin til að stemma stigu við neikvæðum áhrifum kláms er aukin kynfræðsla. Þetta er mat Thomasar Brorsen Smidt, doktors í kynjafræði og verkefnastjóra hjá Háskóla Íslands, en sjálfur hefur hann rannsakað viðhorf fólks á Íslandi og neyslu þess á klámi. Hann segir gagnrýni á þá Íslendinga sem framleiða klámefni á OnlyFans hafa helst byggst á siðvöndunarsjónarmiðum.
„Enginn þeirra karlmanna ég ræddi við í rannsókninni minni borgaði fyrir klámið sem þeir notuðu,“ segir Thomas, en tekur fram að rannsóknin hafi verið gerð árið 2013 og neyslumynstur í klámi hafi breyst síðan þá. „Klámiðnaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár þar sem allir ná í sitt klám ókeypis á netinu. Stóru fyrirtækjunum eins og Pornhub tókst engu að síður að græða með sölu auglýsinga og fleiru. Mörgum sem nota OnlyFans núna er oft …




























Athugasemdir