Ósk Tryggva­dóttir og Ingólfur Valur Þrast­ar­son Ósk og Ingólfur eru ekki par, en búa saman og taka gjarnan upp kyn­lífs­mynd­bönd saman. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vilja opna umræðuna um kynlífsvinnu á Íslandi

Ósk Tryggva­dóttir og Ingólfur Valur Þrastarson segjast hafa mætt miklum stuðningi eftir að hafa opnað sig um kynlífs­myndbönd sem þau selja á síðunni OnlyFans. Í úttekt Stundarinnar á kynlífs­vinnu á Íslandi er rætt við fræðimenn, lögreglu og fólk sem hefur unnið í samfélags­kimanum sem þögn hefur ríkt um.

Þegar Ósk Tryggva­dóttir og Ingólfur Valur Þrastarson fóru í viðtal í þættinum Eigin konur nýverið til að ræða reynslu sína af því að taka upp kynlífs­myndbönd og birta á vefsíðunni OnlyFans gegn gjaldi bjuggust þau ekki við því að hávær umræða færi af stað á samfélags­miðlum. Áhrifa­valdar með þúsundir fylgjenda birtu skoðanir sínar um þau og starfs­vettvanginn og allir virtust hafa afstöðu með eða á móti dreifingu nektar­mynda, kynlífi gegn greiðslu eða klámi almennt.

„Þetta var mjög yfir­þyrmandi,“ segir Ósk. „Við vissum alltaf að við mundum fá einhver viðbrögð, en þetta var mjög mikið.“

Ósk og Ingólfur eru bæði með OnlyFans reikninga og hafa það að aðal­atvinnu. Þau eru ekki par, en búa saman og framleiða oft saman erótískt efni. Ósk bjó á Bretlandi um tíma og kynntist þar fólki sem starfar í erótískum dansi á viðburðum. „Ég er mjög ánægð að hafa farið í þann bransa, því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynlífsvinna á Íslandi

Mest lesið undanfarið ár