Skipulagt líknardráp

Talibanar unnu lang­hlaupið í Afganistan. Þeir ráða yfir þriðjungi landsins og Bandaríkja­menn eru nú farnir á brott.

Halda heim á leið
Halda heim á leið Kalla á allt banda­rískt her­lið heim frá Afganistan fyrir 11. sept­em­ber næst­kom­andi. Mynd: ISAF / Jennifer Cohen

Banda­ríkin eru nú að kalla allt herlið sitt heim frá Afganistan eftir 20 ára langt stríð sem hefur kostað meira en tvö hundruð þúsund líf og tvær trilljónir dollara. Talíbanar fagna sigri og árangurinn virðist í fljótu bragði lítill.

Breski heim­spekingurinn Bertrand Russell sagði að stríð skæru ekki úr um hver hefði rétt fyrir sér, þau skæru aðeins úr um hver væri eftir. Talíbanar vissu sem var, þegar innrásarher Banda­ríkjanna bar að ströndum þeirra fyrir tveimur áratugum, að þetta yrði langhlaup en ekki sprett­hlaup.  

Stríðs­frétta­ritari lýsti því á dögunum í viðtali hvernig það hefði verið að koma til Kandahar, höfuð­vígis talíbana, rétt eftir að borgin féll í hendur innrásar­liðsins í desember árið 2001. Hvert sem hann leit sá hann skeggjaða og reiðilega menn sem stóðu á götu­hornum og störðu út í loftið. 

„Hvað eru þeir að gera?“ spurði frétta­ritarinn túlk sinn. „Þeir eru að bíða eftir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár