Leitar líffræðilegs föður síns og vonast til að græða fleira fólk í kringum sig

Ásta Kristín Guð­rún­ar­dóttir Páls­dóttir komst að því að faðir hennar væri ekki líf­fræði­legur faðir hennar fyrir ára­tug. Hún leitar nú líf­ræði­legs föður síns og von­ast til að fólk sem þekkti móður hennar, Guðrúnu Margréti Þor­bergs­dóttur, geti orðið henni til aðstoðar í leit­inni.

Leitar líffræðilegs föður síns og vonast til að græða fleira fólk í kringum sig
Vill fjölga fólk­inu í kringum sig Ásta Kristín segir for­vitn­ina reka sig áfram í leit­inni að líf­fræði­legum föður. Hún eigi frá­bæran pabba og góða fjöl­skyldu en von­ast til að geta fjölgað fólki í kringum sig. Mynd: Facebook

Ásta Kristín Guð­rún­ar­dóttir Páls­dóttir var komin á full­orð­ins­aldur þegar hún komst að því að faðir hennar væri ekki líf­ræði­legur faðir hennar. Hún hefur því síð­ast­lið­inn ára­tug leitað líf­fræði­legs föður síns en móðir hennar dó árið 1991, þegar Ásta var aðeins fjög­urra ára gömul. Hún segir for­vitn­ina knýja sig áfram og von­ast til þess að græða fleira fólk í kringum sig en fyrir eigi hún ótrú­legan fjölda af góðu fólki sem hún er afskap­lega þakk­lát fyrir.

Móðir Ástu hét Guðrún Margrét Þor­bergs­dóttir og var fædd árið 1961. Hún var mikið í dansi segir Ásta dóttir hennar og í Íslend­inga­bók er Guðrún sögð dans­kenn­ari. Meðal ann­ars vann Guðrún á Prikinu og á Orku­stofnun.

Ásta fædd­ist í Reykja­vík árið 1987, ólst þar upp og býr þar enn. „Ég ólst upp hjá góðri fjöl­skyldu og á frá­bæran föður. Mamma mín dó árið 1991 og ég komst að því á full­orð­ins­árum að ég ætti annan líf­fræði­legan föður. Ég veit hins­vegar ekki hver það er og hef engar upp­lýs­ingar, en mig myndi langa til að reyna að finna hann,“ segir Ásta í Facebook-færslu sem hún birti í gær­kvöldi. Sú færsla hefur vakið gríð­ar­lega athygli og hefur verið deilt í hund­ruðum til­vika.

Ótrúlega heppin með pabba sinn

Spurð hvort hún hafi fengið ein­hverjar upp­lýs­ingar og þræði til að rekja segir Ásta að enn sem komið er hafi færslan ekki borið slíkan árangur, enda stutt síðan hún birti hana. „Ekki ennþá en það er fullt af fólki að senda mér vina­beiðnir og margir hafa gefið mér ráð um hvernig ég eigi að bera mig að við leit­ina. Ég er hins vegar eig­in­lega búin að prófa allt annað en að birta þetta svona opin­ber­lega. Ég hef leitað í mörgum gena­bönkum og reynt að bera saman upp­lýs­ingar við Íslend­inga­bók. Það er hins vegar alveg gríð­ar­lega mikil vinna og ég hef af og til í mjög langan tíma verið að bera þetta saman, hingað til án árang­urs.

Nú eru hins vegar komnir miklu fleiri hausar til að pæla í mál­inu, fólk sem hefur verið á alls konar stöðum á alls konar tímum. Sumir sem hafa verið að skrifa athuga­semdir hafa aug­ljós­lega þekkt mömmu og ég er búin að sjá ótrú­lega margar fal­legar athuga­semdir um hana sem mér þykir mjög vænt um. Fólk vill hjálpa mér, mjög mikið.“

„Á þess­ari veg­ferð hef ég þess vegna kynnst mömmu og það er mér dýr­mætt“

Ásta var 24 ára þegar hún komst að því að faðir hennar væri ekki líf­fræði­legur faðir hennar. Tíu ár eru síðan það var og hefur hún frá þeim tíma leitað upp­lýs­inga um hver líf­fræði­legur faðir hennar sé. „Ég byrj­aði á að spyrja alla sem ég vissi að hefðu þekkt mömmu og hún hefði mögu­lega getað trúað fyrir hlut­unum. Að sama skapi not­aði ég tæki­færið og spurði fólk um mömmu, rann­sak­aði eig­in­lega líf hennar svo­lítið því í þessu ferli upp­götv­aði ég að ég vissi í raun sára­lítið um hana, hvað hún hefði gert mikið í líf­inu. Á þess­ari veg­ferð hef ég þess vegna kynnst mömmu og það er mér dýr­mætt.“

Spurð hvernig faðir hennar hefði tekið upp­götv­un­inni segir Ásta að hann hafi tekið henni ótrú­lega vel. „Eins og höfð­ingi. Hann er mín stoð og stytta, í líf­inu en líka í þess­ari leit.“

Ásta útskýrir að hún hafi tekið ákvörðun um að birta Facebook-færsl­una nú vegna þess að hún hafi verið örugg með ákvörð­un­ina. „Ég var kannski ekki alveg viss hvernig fólk myndi tala um mömmu, hvort það yrði sárt kannski, en ég var orðin örugg í mínu skinni. Svo eru allir búnir að vera ótrú­lega hlýir svo þetta hefur bara verið efl­andi fyrir mig. Mig lang­aði ekki að þetta yrði eins og ein­hver sorg­ara­saga, þetta er það ekki, ég er ótrú­lega heppin í líf­inu og ótrú­lega heppin með pabba minn. Ég er hins vegar for­vitin um hver er líf­fræði­legur faðir minn og ef ég finn hann er ég von­andi bara að græða fleira fólk í kringum mig.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár