Greindi Braga frá ofbeldinu en hann gerði ekkert með það

María Ás Birg­is­dóttir lýsir því að hún hafi verið beitt illri með­ferð og and­legu ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni þegar hún var vistuð á með­ferð­ar­heiml­inu Lauga­landi. Hún greindi þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, Braga Guð­brands­syni, frá ofbeld­inu en hann bar lýs­ingu hennar í Ingjald sem hellti sér yfir hana fyrir vikið. Full­trúar barna­vernd­ar­yf­ir­valda brugð­ust ekki við ítrek­uðum upp­lýs­ingum Maríu um ástandið á Lauga­landi.

Heyrir enn skammirnar í Ingjaldi María segir að henni sé fyrst nú að takast að byggja sig upp eftir vistunina á Laugalandi, fyrir tæpum tuttugu árum. Hún fái þó enn martraðir og heyri stundum Ingjald Arnþórsson æpa á sig í höfðinu.

„Mér finnst ég stundum enn þá heyra í Ingjaldi í höfð­inu á mér. Hann er að æpa, hann er að skamma mig, það er ekk­ert nógu gott sem ég geri.“

Svona lýsir María Ás Birg­is­dóttir afleið­ingum vist­unar sinnar á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi í Eyja­firði þar sem hún var vistuð frá 4. sept­em­ber 2001 til 19. maí 2003. María er níunda konan sem stígur fram opin­ber­lega í Stund­inni og lýsir því að hafa verið beitt ofbeldi og harð­ræði af Ingjaldi Arn­þórs­syni og Áslaugu Brynjars­dóttur, rekstr­ar­að­ilum með­ferð­ar­heim­il­is­ins á árunum 1997 til 2007.

María lýsir því í við­tali við Stundina að hún hafi ítrekað reynt að gera barna­vernd­ar­yf­ir­völdum við­vart um hvernig ástand mála væri á Lauga­landi, að Ingj­aldur stýrði þar með ótta­stjórnun og beitti stúlk­urnar and­legu og lík­am­legu ofbeldi. Hún hafi alltaf talað fyrir daufum eyrum. Meðal ann­ars hafi hún greint Braga Guð­brands­syni, þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, frá. „Það voru nú ekki mikil við­brögð, kink­aði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár