Peningaþvætti ekki hluti af rannsókn morðsins í Rauðagerði

Margeir Sveins­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, segir pen­inga­þvætti ekki tengj­ast rann­sókn á morð­inu sem framið var í Rauða­gerði í febr­ú­ar­mán­uði. Albani sem er í haldi lög­reglu er sá sem er grun­aður um morðið. Rannsókn máls­ins er að hans sögn senn að ljúka og því mun lög­reglan halda sér­stakan fund með fjöl­miðlum til að ljúka mál­inu gagn­vart þeim.

Peningaþvætti ekki hluti af rannsókn morðsins í Rauðagerði
Rannsókn teng­ist ekki pen­inga­þvætti Margeir Sveins­son stað­festir í sam­tali við Stundina að mögu­legt pen­inga­þvætti og fjár­svik teng­ist ekki rann­sókn lög­regl­unnar á morð­inu í Rauða­gerði Mynd: Samsett / Davíð Þór

Lög­reglan hefur ekki til rann­sóknar mögu­legt pen­inga­þvætti og fjár­svik í tengslum við morðið sem framið var í Rauða­gerði 13. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þetta stað­festir Margeir Sveins­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn. Margeir stað­festir jafn­framt að albanskur karl­maður, sem er í haldi lög­reglu, sé sá sem grun­aður sé um morðið. Morð­rann­sóknin er langt komin og vonir standa til að hægt verði að senda málið til ákæru­sviðs innan fárra vikna.

Í lok febr­ú­ar­mán­uðar greindi Rík­is­út­varpið frá því að það hefði heim­ildir þess efnis að sam­hliða rann­sókn á morð­inu í Rauða­gerði væri lög­reglan einnig að rann­saka mögu­legt pen­inga­þvætti og fjár­svik í tengslum við málið. Margeir Sveins­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn stað­festir í sam­tali við Stundina að svo sé ekki, hann viti ekki hvaðan Rík­is­út­varpið hafi fengið þær upp­lýs­ingar. „Rannsókn á morð­inu í Rauða­gerði felur í sér rann­sókn á morð­inu,“ svar­aði Margeir fyr­ir­spurn blaða­manns. Þar að auki segir Margeir að ef svo væri, að pen­inga­þvætti væri rann­sakað sam­hliða, myndi hann ekki „endi­lega segja frá því ef svo væri“ eins og hann orð­aði það, slíkar upp­lýs­ingar gætu varðað rann­sókn­ar­hags­muni. 

Albani grunaður um verknaðinn

Fjórtán hafa nú rétt­ar­stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins. Meðal þeirra er albanskur karl­maður sem situr í gæslu­varð­haldi, grun­aður um að hafa skotið fórn­ar­lambið Armando Bequiri níu sinnum fyrir utan heim­ili sitt í Rauða­gerði 28, á meðan þunguð kona hans var inn á heim­il­inu. Margeir segir að grunur lög­regl­unnar um að það hafi verið Albaninn sem varð Armando að bana hafi vaknað snemma við rann­sókn máls­ins. 

Lög­reglan lagði nýlega hald á skot­vopnið sem Albaninn á að hafa notað við verkn­að­inn. Rann­sóknin er lang umfangs­mesta morð­rann­sókn lög­regl­unnar til þessa en lög­reglan hefur til þessa farið í hús­leit á yfir 30 stöðum þar sem hún hefur lagt hald á muni, til að mynda bíla. 

Rannsókn málsins að ljúka

Að sögn Margeirs bindur lög­reglan vonir við að hægt verði að senda málið til ákæru­sviðs lög­regl­unnar innan tveggja til þriggja vikna þar sem rann­sókn af hendi lög­reglu fari senn að ljúka. Að sögn Margeirs það sem út af stendur af rann­sókn­inni að miklu leyti það að ljúka við papp­írs­vinnu.

Þar sem rann­sókn máls­ins fer að ljúka hjá lög­reglu segir Margeir að næsta skref sé að boða fjöl­miðla til fundar til að „ljúka mál­inu við fjöl­miðla“. Lög­reglan eigi eftir að taka saman hvað nákvæm­lega verði farið yfir á þeim fundi og hvort að nýjar upp­lýs­ingar muni líta dags­ins ljós.

Verjandi í samskiptum við aðra sakborninga

Stundin fjall­aði nýverið um lög­mann Anton Kristins Þór­ar­ins­sonar, eins sak­born­inga í mál­inu, en skipun lög­manns­ins Stein­bergs Finn­boga­sonar sem verj­anda Antons var felld úr gildi af hér­aðs­dómi Reykja­víkur og var sú ákvörðun stað­fest af Lands­rétti. Anton er eini Íslend­ing­ur­inn með stöðu sak­born­ings í mál­inu. Eins og Stundin hefur fjallað um áður er Anton sam­kvæmt gögnum lög­regl­unnar tal­inn hafa verið „langstærsti fíkni­efna­bar­ón­inn á Íslandi“. Gögnin sem um ræða var lekið í jan­úar síð­ast­liðnum en þau benda til þess að hann hafi verið upp­ljóstr­ari lög­reglu til fjölda ára.

Lög­reglan telur Stein­berg mik­il­vægt vitni í mál­inu þar sem fjar­skipta­gögn sýna fram á að hann hafði haft sam­skipti við aðra sak­born­inga áður en hann varð verj­andi Antons. Stein­bergur var lög­maður Antons áður en Anton óskaði eftir því að hann yrði skip­aður verj­andi en Stein­bergur full­yrti við blaða­mann Stund­ar­innar að sam­skipti hans við sak­born­inga, fyrir og eftir að morðið var framið, hafi verið í sam­ræmi við skyldur hans sem lög­manns Antons til fjölda ára.

Margeir vill ekki stað­festa hvort Stein­bergur hafi verið kall­aður til skýrslu­töku eða ekki í tengslum við að rann­sókn máls­ins sé að ljúka. Rík­is­út­varpið greinir þó frá í dag að sam­kvæmt heim­ildum þeirra hafi hann ekki verið boð­aður til þessa.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár