Ásmundur Einar mun hvetja til að rannsókn á Laugalandsmáli verði hraðað

Tryggt verður að fjár­skortur standi því ekki fyrir þrifum að hægt verði að rann­saka hvort stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi sætt illri með­ferð og ofbeldi, segir félags­mála­ráð­herra.

Ásmundur Einar mun hvetja til að rannsókn á Laugalandsmáli verði hraðað
Ætlar að tryggja fjár­magn Það mun ekki standa á fjár­magni frá félags­mála­ráðu­neyt­inu til að hægt sé að hraða rann­sókn á Lauga­landi segir Ásmundur Einar. Mynd: Velferðarráðuneyti

Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra, mun setja sig í sam­band við Gæða- og eft­ir­lits­stofnun félags­þjón­ustu og barna­verndar (GEF) og hvetja til þess að rann­sóknin á með­ferða­heim­il­inu að Lauga­landi verði unnin eins hratt og mögu­legt er. Hann mun jafn­framt tryggja að fjár­skortur standi því ekki fyrir þrifum að stofn­unin geti sinnt verk­efn­inu.

Ásmundur Einar fól stofn­un­inni að rann­saka starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins með bréfi 23. febr­úar síð­ast­lið­inn. Verkefni stofn­un­ar­innar er að kanna hvort stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauglandi, áður Varp­holti, á árunum 1997 til 2007, undir for­stöðu Ingjalds Arn­þórs­sonar, hefðu sætt illri með­ferð, and­legu eða lík­am­legu ofbeldi. Átta stúlkur hafa stigið fram í Stund­inni og lýst því að Ingj­aldur hafi beitt þær ofbeldi, slegið þær, hrint þeim niður stiga og sparkað í þær meðal ann­ars. Enn fleiri stúlkur bera hið sama.

Í frétt sem Stundin birti í morgun kemur fram að rann­sókn máls­ins er ekki í for­gangi hjá Gæða- og eft­ir­lits­stofn­un­inni og verður hún unnin með­fram öðrum verk­efnum stofn­un­ar­innar. Þá er rann­sóknin ekki enn hafin, rúmum mán­uði eftir að stofn­un­inni var falið að sinna henni og und­ir­bún­ingur hennar aðeins nýhaf­inn.

Konurnar mjög vonsviknar

Stundin hefur rætt við konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu og áttu meðal ann­ars fundi með Ásmundi í febr­úar, sem urðu til þess að rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti til­lögu hans um að rann­sókn skyldi fara fram. Konurnar lýsa miklum von­brigðum með seina­gang við rann­sókn máls­ins og aðgerða­leysi sem jaðri við áhuga­leysi. Engin kvenn­ana hafi heyrt frá stofn­un­inni á þeim mán­uði sem lið­inn er síðan henni var falin rann­sóknin og það sé reið­ar­slag fyrir þær að heyra að ekki hafi verið sett á fót sér­stakt teymi sem muni sinna rann­sókn­inni sér­stak­lega heldur verði hún unnin með­fram öðrum störfum nefnd­ar­innar og nið­ur­staðna sé ekki að vænta um langa hríð.

„Ég mun setja mig í sam­band við stofn­un­ina og hvetja hana til að vinna þetta eins hratt og mögu­legt er“
Ásmundur Einar Daðason
félags- og barna­mála­ráð­herra

Spurður hvort að þessi vinnu­brögð séu það sem að var stefnt þegar verk­efnið var sett í hendur Gæða- og eft­ir­lits­stofn­un­inni segir Ásmundur Einar að mark­miðið hafi verið að rann­sóknin lyti ekki póli­tískri stjórn heldur yrði í höndum óháðrar, sjálf­stæðrar stofn­unar. „Það er því í höndum stofn­un­ar­innar að sinna verk­efn­inu, líkt og öðrum málum sem hún er með í gangi. Ég vænti þess að þetta verði unnið hratt og vel. Það er ekki mitt nákvæm­lega að meta tíma­ás­inn í því en ég mun setja mig í sam­band við stofn­un­ina og hvetja hana til að vinna þetta eins hratt og mögu­legt er og tryggja að það sé ekki fjár­magns­skortur sem aftri því að það verði hægt. Það er það sem ég mun gera. Að öðru leyti er þetta í höndum stofn­un­ar­innar en ekki ráðu­neyt­is­ins og hún verður að öðru leyti fag­lega að svara fyrir málið, hvernig það er unnið, skipu­lagt og sett upp.“

Spurður hvort hann skilji óánægju kvenn­anna með það sem þeim þykir vera seina­gangur í mál­inu segir Ásmundur Einar að ljóst sé að verk­efnið sé umfangs­mikið. „Svona mál geta tekið tals­verðan tíma og ég upp­lýsti stúlk­urnar um það þegar ég fund­aði með þeim að þetta myndi taka tals­verðan tíma vegna þess að það þarf að standa rétt og fag­lega að því. Ég treysti stofn­un­inni til þess og hef ekk­ert annað í hönd­unum en að það sé verið að vinna á þeim nótum sem lagt var upp með.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu