Aðili

Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar

Greinar

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Kona sem upp­lifði harð­ræði á Lauga­landi lýsir sím­tali frá Braga

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hringdi í konu sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi fyrir tveimur vikum síðan. Konan segir Braga hafa full­yrt að engin gögn styddu það að konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hefðu verið beittar ofbeldi þar. Ellefu konur hafa lýst harð­ræði og ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­órs­sonar for­stöðu­manns. Bragi segir tíma­bært að „maður sé ekki hund­eltur“ vegna slíkra mála.

12 mín. lestur

FréttirLaugaland/Varpholt

Félags­mála­ráðu­neytið brýtur upp­lýs­inga­lög í Lauga­lands­mál­inu

Félags­mála­ráðu­neytið svarar ekki bréfum kvenna sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi né heldur erindi lög­manns kvenn­anna. Lög­bund­inn frestur til að svara erind­unum er útrunn­inn. Þrátt fyrir lof­orð þar um hefur Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra ekki boðið kon­unum til fundar að nýju.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Rannsókn á starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands ekki í for­gangi og langt í nið­ur­stöðu

Rannsókn á því hvort stúlkur hafi verið beittar illri með­ferð og ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu er enn á und­ir­bún­ings­stigi hjá Gæða- og eft­ir­lits­stofnun félags­þjón­ustu og barna­verndar. Vinna á rann­sókn­ina með­fram dag­legum verk­efnum „og því ljóst að nið­ur­staðna er ekki að vænta á næst­unni,“ segir í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu