Miðja fyrir myndlistarumfjöllun á Íslandi

Mynd­list­ar­menn og mynd­list­ar­á­huga­menn nær og fjær geta nú andað léttað því 7. mars síð­ast­lið­inn urðu hugs­an­lega ákveðin tíma­mót í íslenskri mynd­list­ar­sögu. Komið hefur verið á lagg­irnar tíma­riti, Myndlist á Íslandi, þar sem fjallað er um mynd­list á for­sendum mynd­listar.

Miðja fyrir myndlistarumfjöllun á Íslandi
Rit­stjóri Mynd­listar Stark­aður Sig­urð­ar­son segir tíma­ritið vera mik­il­væga heim­ild fyrir fram­tíð­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Um er að ræða opinn og fag­legan vett­vang þar sem vandað efni um mynd­list á  heima sem og efni skapað af fólk­inu sem skapar sjálfa sen­una. 

Tímarit tileinkað myndlist 

Stark­aður Sig­urð­ar­son, rit­stjóri tíma­rits­ins glæ­nýja, segir mark­miðið að hafa efnið í blað­inu  fjöl­breytt, enda af nógu að taka eins og sagt er. Hann bætir við að þó hægt sé að finna  til­tölu­lega mikið af umfjöllun um mynd­list hér á landi þá sé hún oft­ast fundin á stöðum þar sem mynd­list er ekki aðal­við­fangs­efnið. Nýja tíma­ritið er til­einkað mynd­list, og ein­göngu mynd­list. Það hefur vantað vett­vang þar sem sviðs­ljós­inu er varpað á list­ina. „Ætlun blaðs­ins er að skapa öfl­uga útgáfu, fjöl­breytta og aðgengi­lega, vegna þess að mynd­list­ar­senan á Íslandi er öflug, fjöl­breytt og aðgengi­leg. Við viljum að fleiri viti af henni  og taki þátt í henni,“ bætir Stark­aður við.  

Ekkert grín að gefa út myndlistartímarit  

Í gegnum tíð­ina hafa tíma­rit verið gefin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár