271. spurningaþraut: Hvað heitir eyjan á Kollafirði þar sem lundar verpa í stórum stíl, og fleiri spurningar

271. spurningaþraut: Hvað heitir eyjan á Kollafirði þar sem lundar verpa í stórum stíl, og fleiri spurningar

Landa­fræði­þrautin frá í gær.

***

Auka­spurn­ing fyrri:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá (til vinstri) banda­rískan for­seta sem sat í emb­ætti á stríðs­tímum. Lengi eftir hans dag virtu menn hann mik­ils fyrir hug­myndir hans um sam­vinnu þjóða eftir stríðið. Nú á seinni árum hefur hann fallið í áliti, því kast­ljós­inu hefur verið beint að því að hann var í raun­inni svæs­inn kyn­þátta­hat­ari og skerti hlut svartra íbúa í Banda­ríkj­unum og urðu áhrif hans á því sviði lang­vinn og skað­leg. Hvað heitir mað­ur­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Perm heitir borg ein í Evrópu þar sem býr milljón manns. Í hvaða landi er Perm?

2.   Olga Khok­hlova, úkra­ínskur ball­ett­dans­ari — Marie-Thérèse Walter, frönsk fyr­ir­sæta — Marie Françoise Gilot, franskur mál­ari. Burtséð frá öðru sem þær áttu sam­eig­in­legt, þá áttu þær allar börn með einum og sama lista­mann­inum. Hver var sá?

3.   Út í hvaða haf fellur Dóná?

4.   Hver var nor­ræni þrumuguð­inn?

5.   Banda­ríska geim­ferða­stofn­unin hefur nú valið hóp geim­fara sem eiga að fara til tungls­ins er fram líða stundir. Áætlunin kall­ast Artemis og heitir eftir grískri gyðju. Hvernig gyðja var Artemis?

6.   Hver fékk Ósk­arsverð­laun sem besta leik­konan árið 1991 fyrir hlut­verk sitt sem kná og þrautseig FBI-kona?

7.   Hvað kall­ast þing­húsið í London?

8.   Á Kolla­firði, skammt norður af Viðey og Geld­inga­nesi og um 400 metra vestur af Þerney, er lítil eyja. Það ber ekki mikið á henni en þar er gríð­ar­lega mikið fugla­líf og alveg sér­stak­lega blóm­leg lunda­byggð. Hvað heitir þessi litla eyja?

9.   Hvað kall­ast skipa­skurð­ur­inn milli Mið­jarð­ar­hafs og Rauða hafs?

10.   „Nú er frost á Fróni, / frýs í æðum blóð, / kveður kulda­ljóð ...“ Ha? Hver kveður kulda­ljóð?

***

Auka­spurn­ing, sú hin síð­ari:

Kona sýnir öll merki þess að vilja meiða fót, sem sést neðst á mynd­inni. Sem betur fer gerð­ist þetta ekki í alvör­unni, heldur í bíó­mynd, og konan fékk Ósk­arsverð­laun fyrir frammi­stöðu sína. Leik­konan heitir Kathy Bates, en hvað hét bíó­myndin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Rúss­landi.

2.   Picasso.

3.   Svarta­haf.

4.   Þór.

5.   Veiði­gyðja.

6.   Jodie Foster.

7.   Westminster.

8.   Lundey.

9.   Súez.

10.   Kári í jöt­un­móð.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Banda­ríkja­for­set­inn hét Wilson.

Bíó­myndin er Misery, eða Eymd.

***

Og svo er hér hlekkur á landa­fræði­þraut­ina síðan í gær. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár