Landvernd gagnrýnir blekkingar í úrgangsmálum og leggur til úrbætur

Tölfræði um úrgangs­mál á Íslandi stenst ekki skoðun. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Land­vernd leggja til leiðir til úrbóta. „Fyr­ir­tæki stunda blekk­ing­ar­leik og atvinnu­lífið sem sveit­ar­fé­lögin hamla fram­förum,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Landvernd gagnrýnir blekkingar í úrgangsmálum og leggur til úrbætur

Stjórn umhverf­is­sam­tak­anna Land­vernd hefur sent frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu þess efnis að úrgangs­mál á Íslandi séu enn í miklum ólestri. Stundin birti nýverið ítar­lega grein­ingu fyrir stuttu á því hvernig staðan er á úrgangs­málum á Íslandi. Þar kom meðal ann­ars fram að töl­fræði um end­ur­vinnslu­hlut­fall Íslands á plasti á sér enga stoð í raun­veru­leik­anum, ásamt því að íslensk end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki hafa sent í mörg ár plast til Sví­þjóðar, plast sem endar í litlu magni í end­ur­vinnslu. Fyr­ir­tækið Swerec, sem meðal ann­ars Sorpa sendir plastið sitt til, hefur verið undir lög­reglu­rann­sóknum í þremur ríkjum og átt þátt í einu stærsta umhverf­isslysi í sögu Lett­lands. Í því slysi brunnu um 23 þús­und tonn af plasti, þar af var um rétt helm­ingur frá Swerec. 

Raunveruleg þróun sé mögulega verri en opinberar tölur gefa til kynna. 

Í yfir­lýs­ing­unni, sem send var meðal ann­ars á fram­kvæmda­stjóra Sorpu og fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að úrgangs­mál Íslend­inga séu enn í miklum ólestri og að raun­veru­leg þróun úrgangs­mála hér á landi geti því verið mun verri en opin­berar tölur gefa til kynna. 

„Þá nið­ur­stöðu má draga af grein­ingu Stund­ar­innar að úrgangs­mál Íslend­inga séu enn í miklum ólestri, tölu­legar upp­lýs­ingar ekki sann­leik­anum sam­kvæmt, fyr­ir­tæki stunda blekk­ing­ar­leik og atvinnu­lífið sem sveit­ar­fé­lögin hamla fram­förum. Raun­veru­leg þróun úrgangs­mála kann því að vera veru­lega verri en opin­berar tölu­legar upp­lýs­ingar gefa til kynna, og langt frá því að Ísland upp­fylli þær skuld­bind­ingar sem fel­ast í EES samn­ingum. “

„Nið­ur­staðan er að þessi mál eru í miklum ólestri“

Blekkingar fegra myndina

Land­vernd segir að úrgangs­mál á Íslandi séu enn í miklum ólestri og ekki í sam­ræmi við lög. Þá segja sam­tökin að blekk­ingar séu stund­aðar til að fegra stöð­una um end­ur­vinnslu hér á landi og þörf sé á rót­tækum breyt­ingum í mála­flokknum.

„Blekk­ingar eru stund­aðar til að fegra stöð­una“

„Nið­ur­staðan er að þessi mál eru í miklum ólestri, ekki í sam­ræmi við lög og blekk­ingar eru stund­aðar til að fegra stöð­una. Málið var tekið fyrir á nýlegum fundi stjórnar Land­verndar. Stjórnin telur að fram­lagðar upp­lýs­ingar um stöðu mála sýni að ástandið er algjör­lega óvið­un­andi og að það er þörf fyrir rót­tækar breyt­ingar til að færa málin í betra horf. Land­vernd telur að eft­ir­far­andi aðgerðir geti verið leið til að koma málum í ásætt­an­legt ástand á næstu árum.“

Leggja fram tillögur til að laga kerfið.

Í yfir­lýs­ing­unni setur Land­vernd fram níu til­lögur um aðgerðir sem þau telji geti lagað ástandið þegar kemur að úrgangs­málum. Meðal til­lagna er að koma á urð­un­ar­skatti, en Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra ákvað að hætta við að leggja fram frum­varps þess efnis á Alþingi í októ­ber síð­ast­liðnum. Þá leggur Land­vernd einnig til að lagt verði skila­gjöld á veið­ar­færi frá sjáv­ar­út­veg­inum. Í dag bera veið­ar­færi, sem eru að mestu úr plasti, engin gjöld og er því lít­ill sem eng­inn hvati í kerf­inu að end­ur­vinna þau. Samkvæmt tölum Umhverf­is­stofn­unar endar meira en helm­ingur allra veið­ar­færa á rusla­haugum lands­ins þar sem þau eru urðuð.

Hvetja alla aðila að bæta sín ráð

Að lokum segir Land­vernd að allir þeir aðilar sem standi að úrgangs­málum á Íslandi taki höndum saman og bæti ráð sitt. Þá munu sam­tökin bjóða öllum aðilum sem koma að mála­flokknum til sín á fund til að ræða úrbætur.

„Land­vernd hvetur atvinnu­lífið og sveit­ar­fé­lögin til að bæta ráð sitt og taka nú höndum saman um úrbætur sem duga, og að styðja þær til­lögur um aðgerðir sem hér koma framan. Ef ekki, þá að benda á aðrar leiðir sem eru lík­legar til að koma sam­fé­lag­inu á rétta braut í þessum mála­flokki. Að sjálf­sögðu eru sam­tökin reiðu­búin til umræðu um aðrar leiðir til mark­tækrar umbóta í úrgangs­málum og munu á næst­unni bjóða til fundar í þeim til­gangi.“

Hér að neðan má sjá yfir­lýs­ingu Land­verndar í heild.

Í Stund­inni 23.10.2020 birt­ist úttekt Bjart­mars Alex­and­ers­sonar undir fyr­ir­sögn­inni „Plast­leynd­ar­mál Íslands“. Greinin er greini­lega unnin af mik­illi þekk­ingu á mál­efn­inu og víða leitað fanga. Þá nið­ur­stöðu má draga af grein­ingu Bjart­mars að úrgangs­mál Íslend­inga séu enn í miklum ólestri, tölu­legar upp­lýs­ingar ekki sann­leik­anum sam­kvæmt, fyr­ir­tæki stunda blekk­ing­ar­leik og atvinnu­lífið sem sveit­ar­fé­lögin hamla fram­förum. Raun­veru­leg þróun úrgangs­mál kann því að vera veru­lega verri en opin­berar tölu­legar upp­lýs­ingar gefa til kynna, og langt frá því að Ísland upp­fylli þær skuld­bind­ingar sem fel­ast í EES samn­ingum. Viðtal við umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í sama blaði tveimur vikum síðar breytir litlu um þær álykt­anir sem draga má af grein­inni frá 23. októ­ber.

Í grein­inn segir frá því að fyr­ir­tæki eins og SORPA og Terra hafa verið í beinum eða óbeinum við­skiptum við vafasöm erlend end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki og sýna ekki við­leitni til að tryggja að staðið sé við fyr­ir­heit um raun­veru­lega end­ur­vinnslu. Þá sé óreiða á hug­tök­unum „end­ur­vinnsla“ og „end­ur­nýt­ing“.

Um Úrvinnslu­sjóð, sem er að meiri­hluta í höndum atvinnu­veg­anna, segir að á stórum hluta þess plast sem fluttur er til lands­ins sé ekki lagt á úrvinnslu­gjald. Gler er líka und­an­þegið gjaldi og það kann að hafa hindrað að gleri sé safnað skipu­lega og end­ur­vinnsla sé hafin á því hér á landi. Þá hefur sjóð­ur­inn veitt fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi ótíma­bundnar und­an­þágur frá almennum reglum.

Í grein­inni er full­yrt að Ísland brjóti EES samn­ing vegna end­ur­vinnslu á gleri og að 30 ára gömul áform um end­ur­vinnslu glers hafi enn ekki komið til fram­kvæmda þar sem þrá­ast hafi verið við að seta úrvinnslu­gjald á gler. Þá er reynt fegra ástandið með því að skil­greina notkun á gleri til að hindra rottu­gang á urð­un­ar­stöðum sem end­ur­vinnslu. Greinin lýsir því einnig tregðu við að upp­færa skila­gjöld og gjöld í Úrvinnslu­sjóð í sam­ræmi við breyt­ingar á verð­lagi og kostn­aði við úrvinnslu, eins og lög þó kveða á um. Greint er frá því að sam­kvæmt reglum eiga fiski­skip að til­kynna ef þau tapa veiði­færum í sjó. Engin til­kynn­ing hefur borist frá útgerð­ar­fé­lögum frá því að lögin voru sam­þykkt árið 2016. Þá er afskrifuð veið­ar­færi svo að segja öll urðuð þar sem það er ódýr­ara en að senda þau til end­ur­vinnslu eða end­ur­nýt­ingar sem orku­gjafa. Í sama blaði er greint frá vinnu við upp­græðslu með moltu frá Terra við Krýsuvík í sam­starfi við Land­græðsl­una. Með molt­unni fór einnig mikið magn af plasti og jafn­vel meng­uðu timbri. Vinnsla á moltu virð­ist því vera í miklum ólestir, bæði hjá þeim sem safna og senda líf­rænan úrgang frá sér og fyr­ir­tæk­is­ins sem tekur við honum. Nið­ur­staðan er að þessi mál eru í miklum ólestri, ekki í sam­ræmi við lög og blekk­ingar eru stund­aðar til að fegra stöð­una.

Málið var tekið fyrir á nýlegum fundi stjórnar Land­verndar. Stjórnin telur að fram­lagðar upp­lýs­ingar um stöðu mála sýni að ástandið er algjör­lega óvið­un­andi og að það er þörf fyrir rót­tækar breyt­ingar til að færa málin í betra horf. Land­vernd telur að eft­ir­far­andi aðgerðir geti verið leið til að koma málum í ásætt­an­legt ástand á næstu árum:

• Efla aðgerðir til að þróa hringrás­ar­hag­kerfið og breyta neyslu til að draga úr úrgangi.

• Kom á urð­un­ar­gjaldi sem gerir urðun óhag­kvæma og styrkir stöðu end­ur­vinnslu.

• Gera skila­gjöld víð­tækri og hækka í sam­ræmi við verð­lags­þróun.

• Úrvinnslu­sjóður starfi á for­sendum almennrar umhverf­is­verndar og þró­ast í tak við kröfur nútím­ans og verði óháður atvinnu­líf­inu.

• Sett verði skila­gjöld á veið­ar­færi.

• Sveit­ar­fé­lög beiti meng­un­ar­bóta­regl­unni við álagn­ingu sorp­hirðu­gjalda.

• Fræðslu um flokkun á úrgangi, og sér­stak­lega líf­rænum úrgangi, verði efld.

• Reglur um um skil og skrán­ingu úrgangs frá bygg­inga­fram­kvæmdum verði skerptar.

• Eft­ir­liti og mæl­ingum á ástandi grunn­vatns og loft­gæða á urð­un­ar­stöðum verði bætt.

Land­vernd hvetur atvinnu­lífið og sveit­ar­fé­lögin til að bæta ráð sitt og taka nú höndum saman um úrbætur sem duga, og að styðja þær til­lögur um aðgerðir sem hér koma framan. Ef ekki, þá að benda á aðrar leiðir sem eru lík­legar til að koma sam­fé­lag­inu á rétta braut í þessum mála­flokki. Að sjálf­sögðu eru sam­tökin reiðu­búin til umræðu um aðrar leiðir til mark­tækrar umbóta í úrgangs­málum og munu á næst­unni bjóða til fundar í þeim til­gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár