Skipverji rýfur samskiptabann útgerðarinnar og segist hafa verið látinn vinna með Covid-19

Útgerðin Hrað­frysti­húsið Gunnvör bann­aði skip­verjum á Júlíusi Geir­munds­syni að ræða veik­indi sín við fjöl­miðla. Ungur háseti, Arnar Hilm­ars­son, hefur rofið bannið og segir: „Tjáning mín á mál­inu er óend­an­lega verð­mæt­ari en starf mitt þarna um borð.“

Skipverji rýfur samskiptabann útgerðarinnar og segist hafa verið látinn vinna með Covid-19
Arnar Hilm­ars­son Fór í við­tal og braut þar með sam­skipta­bann vinnu­veit­anda síns, Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar. Mynd: Skjáskot / RÚV

„Það alvar­leg­asta var að halda mönnum nauð­ugum við vinnu á meðan þeir voru veikir,“ segir Arnar Hilm­ars­son, 21 árs skip­verji á Júlíusi Geir­munds­syni, í við­tali við RÚV í kvöld um Covid-smit um borð. Skip­verjum hefur verið meinað af útgerð­inni að tjá sig um málið og þar með ákvörðun útgerð­ar­innar að halda þeim um borð í þrjár vikur á meðan veik­indi geisuðu, með ein­kennum sem líkt­ust helst Covid-19. Nú eru þrettán skip­verjar enn smit­aðir af Covid-19. 22 af 25 skip­verjar smit­uð­ust á tíma­bil­inu af Covid-19, þar af Arnar. 

Arnar sagði frá mál­inu í við­tali þrátt fyrir bann útgerð­ar­innar og þrátt fyrir að skip­verjar hafi ástæðu til að ótt­ast um atvinnu­ör­yggi sitt ef þeir tjá sig. „Tjáning mín á mál­inu er óend­an­lega verð­mæt­ari en starf mitt þarna um borð,“ segir Arnar.

Fyrst þegar grunur lék á Covid-smiti um borð setti skip­stjór­inn sig í sam­band við smit­sjúk­dóma­lækni. Þá voru skip­verjar settir í ein­angrun í klefa sínum, en þar sem þeir deila klefa þurftu aðrir að sofa á milli vakta í setu­stofu. 

Jafnvel eftir að vitað var að Covid-smit væri um borð, voru skip­verjarnir látnir vinna áfram með slæmum afleið­ingum fyrir heilsu þeirra, þar sem upp­gufun og raki fóru illa í sýkt í lungun á þeim. „Andmæli bein­línis gegn skip­stjór­unum á frysti­tog­ara líðst ekki,“ útskýrir Arnar.

Erfiðast að sjá harðasta manninn óvinnufæran

Arnar lýsir því í við­tal­inu að hann hafi fengið svima, haus­verk, háls­bólgu og hósta, en þekkt er að Covid-ein­kenni verða alvar­legri með aldr­inum. Elsti skip­verj­inn er á sjö­tugs­aldri. Á meðan þeir voru veikir voru þeir látnir standa vakt­ina meðan þeir gátu.

„Sá sem varð veikastur er einn harð­asti maður, sem ég veit um, og hann lét sig hafa það í ein­hverjar þrjár vaktir að vinna veikur. Svo var hann ein­fald­lega orð­inn svo slæmur að hann bara gat það mögu­lega ekki. Það var bara erfitt að horfa upp á hann færa sig upp af bekknum og upp í sjúkra­klefa,“ segir hann.

Þá segir Arnar að við­brögð Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar við veik­indum skip­verja séu lýsandi fyrir fram­komu fyr­ir­tæk­is­ins.

„Hegðun HG í þessum kór­ónu­vírusskandal núna er í nákvæmu sam­ræmi við hegðun fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart starfs­mönnum hvað varðar öryggi og heilsu starfs­manna í for­tíð­inni.“

Hrað­frysti­húsið Gunnvör fékk for­varna­verð­laun trygg­inga­fé­lags­ins TM árið 2012 og sagði fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Einar Valur Krist­jáns­son, að starfs­fólkið væri lyk­ill­inn að við­ur­kenn­ing­unni. „Þetta er klapp á bakið og segir okkur að við séum að gera rétt,“ sagði hann.

Þá sagði að mat sér­fræð­inga TM væri að örygg­is­hegðun væri mjög sterk innan HG og að örygg­is­vit­und, ásamt for­vörnum, skil­uðu árangri með fækkun slysa og veik­inda.

Um leið og áhöfn­inni hefur verið meinað að tjá sig hefur Einar Valur neitað að svara fyrir ákvarð­anir útgerð­ar­innar.

Einar Valur er vara­for­maður atvinnu­vega­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem fjallar um sjávar­útvegs­­mál, land­bún­aðar­­­mál, iðn­aðar- og orku­mál, nýsköpun og tækni­­þróun í stefnu­mótun á lands­fundum flokks­ins. 

Ráðuneyti veiti umsögn um málshöfðun

Lög­reglan á Vest­fjörðum íhugar nú að gera frum­kvæð­is­rann­sókn á athæfi útgerð­ar­innar.

Starfs­að­stæður og rétt­indi sjó­manna eru ekki með sama hætti og í öðrum starfs­geirum. Samkvæmt sjó­manna­lögum „skal skip­verji hlýða skip­unum yfir­boð­ara sinna er að starf­inu lúta“ og „getur þröngvað skip­verjum til hlýðni með valdi ef það er nauð­syn­legt til að halda góðri reglu á skip­inu“. En á móti eru lagðar skyldur á herðar skip­stjór­anum í sömu lögum. „Skip­stjóri skal hafa eft­ir­lit með heil­brigð­is­málum og hrein­læti á skip­inu.“

Ef ætl­unin er að ákæra á grund­velli sjó­manna­laga verður það ekki gert nema eftir að fengin hafi verið umsögn frá sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu, en ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála er Kristján Þór Júl­í­us­son.

Ítarlegt við­tal við Arnar má sjá á vef Rúv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár