Segir áhöfn Júlíusar Geirmundssonar hafa verið stefnt í hættu

Skip­verjum er mjög heitt í hamsi í garð útgerðar skips­ins. Skip­verjar hafi verið veikir því sem næst frá upp­hafi veiði­t­úrs og beðið um að farið yrði í land. Ekki hafi verið orðið við því.

Segir áhöfn Júlíusar Geirmundssonar hafa verið stefnt í hættu
Ósáttir skip­verjar Skip­verjar á Júlíusi Geir­munds­syni eru ósáttir við útgerð skips­ins. Mynd: frosti.is

Skip­verjar á Júlíusi Geir­munds­syni eru fokreiðir út í útgerð skips­ins, Hrað­frysti­húsið Gunnvöru hf., vegna þess hvernig staðið var að málum þegar upp kom COVID-19 smit um borð í skip­inu á dög­unum. Er stað­hæft að fjöldi manns í áhöfn­inni hafi verið orðnir veikir þegar á fyrstu dögum veiði­t­úrs­ins og sjó­menn hafi beðið um að siglt yrði í land og menn sendir í skimun. Því hafi hins vegar í engu verið sinnt.

„Það var beðið um að farið yrði í land í sýna­töku en það var ekki brugð­ist við því“

Hákon Blöndal er vél­stjóri á Júlíusi Geir­munds­syni. Hann var ekki í umræddum túr en er í miklu sam­bandi við menn­ina. Spurður hvort rétt sé að menn hafi verið orðnir veikir því sem næst við upp­haf túrs­ins játar Hákon því. „Það passar alveg. Það var mis­jafnt hvað menn veikt­ust en það voru nokkrir þarna tals­vert veikir. Það var beðið um að farið yrði í land í sýna­töku en það var ekki brugð­ist við því,“ sagði Hákon í sam­tali við Stundina.

22 af 25 með Covid

Hákon setti inn færslu á Facebook þar sem hann tengir á yfir­lýs­ingu Hrað­frysti­húss Gunn­varar vegna máls­ins. Í þeirri til­kynn­ingu kemur fram að af 25 manna áhöfn hafi aðeins þrír ekki fengið veiruna. Níu skip­verjar hafi jafnað sig á veik­ind­unum og séu með mótefni. Þrettán séu hins vegar smit­aðir og ein­angrun, ýmist í far­sótt­ar­húsi í nágrenni Ísa­fjarðar eða á eigin vegum. Þrír séu ekki smit­aðir eða með mótefni og séu því í sótt­kví.

Í til­kynn­ing­unni segir að fljót­lega eftir að farið hafi að bera á veik­indum hafi verið haft sam­band við Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða. „Ekki þótti ástæða til að kalla skipið til hafnar á þeim tíma. Eftir 3 vikur á veiðum var ljóst í kjöl­far skimunar allra áhafn­ar­með­lima að COVID-19 smit var um borð, var skip­inu þá umsvifa­laust snúið til hafnar. Í ljósi þeirrar vit­neskju sem nú liggur fyrir hefði átt að kalla skipið fyrr til hafnar og setja alla áhöfn­ina í skimun.“

Til­kynn­ing­una kallar Hákon í færsl­unni „ljóta hel­vítis yfir­klórið og drullu­mokstur.“ Hann segir að ekki sé öll sagan sögð og menn ættu að taka sig saman í and­lit­inu og við­ur­kenna mis­tök. Komi upp grunur um COVID-19 smit um borð í skipi beri skip­stjóra að hafa sam­band við Land­helg­is­gæsl­una sem taki ákvörðun um næstu skref.

„Annað hvort koma lygar frá þessu fyr­ir­tæki eða að þeir neita að tjá sig“

Ásgeir Erlends­son, upp­lýs­inga­full­trúi Land­helg­is­gæsl­unnar, stað­festir að þetta vinnu­lag sé haft á. „Skipin hafa sam­band við stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unnar sem hefur síðan haft milli­göngu um sam­skipti við sótt­varn­ar­lækni og heil­brigð­is­yf­ir­völd í hér­aði.“

Þetta segir Hákon að ekki hafi verið gert. „Áhöfn fékk aldrei að njóta vafans og var lögð í mikla áhættu!“

Lárus Ómar Guð­munds­son er áhafn­ar­með­limur á Júlíusi Geir­munds­syni og var í umræddum túr. Lárus skrifar athuga­semd við færslu Hákonar og er mjög harð­orður. „Annað hvort koma lygar frá þessu fyr­ir­tæki eða að þeir neita að tjá sig. 11 menn inn á bekk og rest að pína sig veikir fram í vinnslu er ekki „nokkrir sýndu flensu ein­kenni“. Þetta var öll áhöfnin sem var Covid veik í 3 vikur. Og það var ekki farið í land til að testa mann­skap­inn heldur var farið inn í olíu­töku.“ Stundin reyndi ítrekað að ná í Lárus sím­leiðis án árang­urs.

Þá var reynt að ná í Einar Val Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóra Gunn­varar, en hann ýmist skellti á eða var sagður upp­tek­inn. Beðið var um að Einar Valur eða Valdimar Stein­þórs­son útgerð­ar­stjóri hringdu til baka í blaða­mann en það hafði ekki gerst þegar fréttin var birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár