Íslendingar versla meira þrátt fyrir nýja bylgju faraldursins

Versl­un rauk upp í sept­em­ber­mán­uði mið­að við sama mán­uð í fyrra. Ís­lend­ing­ar kaupa raf- og heim­ilis­tæki, áfengi og bygg­inga­vör­ur í aukn­um mæli.

Íslendingar versla meira þrátt fyrir nýja bylgju faraldursins
Innkaup Íslendingar kaupa meira þrátt fyrir faraldurinn. Mynd: Shutterstock

Verslun með raf- og heimilistæki hefur aukist um meira en helming frá því í fyrra. Þrátt fyrir þriðju bylgju COVID-19 faraldursins jókst verslun um 26,3 prósent milli ára í septembermánuði.

Þetta eru niðurstöður Rannsóknarseturs verslunarinnar. „Líkt og í fyrstu bylgju farsóttarinnar jókst innlend verslun töluvert þegar veiran lét á sér kræla á ný. Á sama tíma og verslun eykst minnkar bæði neysla á þjónustu og neysla erlendis,“ segir í tilkynningu frá setrinu.

Velta í verslun septembermánaðar nam 39,2 milljörðum króna, en heildarkortavelta var 68,5 milljarðar í mánuðinum og jókst um 9 prósent á milli ára. Kaup á eldsneyti drógust saman um 9 prósent og kaup á veitingum um 1 prósent, en að öðru leyti jókst verslun umtalsvert á milli ára.

Velta í stórmörkuðum og dagvöruverslunum jókst um 21 prósent á milli ára. „Aukin heimavinna auk sóttkvíar á vafalaust þátt í aukningu dagvöruverslunar með greiðslukortum,“ segir í tilkynningunni. „Á móti má ætla að umsvif mötuneyta vinnustaða sem dæmi hafi dregist saman.“

Fataverslun jókst um 36 prósent á milli ára, en í fyrstu bylgju faraldursins í vor mátti sjá töluverðan samdrátt í fataverslun, ólíkt því sem var í síðasta mánuði. Veruleg veltuaukning var í verslunum með byggingavörur og verslunum með raf- og heimilistæki. Í fyrrnefnda flokknum jókst veltan um 45 prósent milli ára og nam 3,3 milljörðum kr. Í þeim síðarnefnda nam veltan alls 2,6 milljörðum og jókst um tæp 54 prósent milli ára. Þá jókst verslun með áfengi um 45,8 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Fljúga flugdrekum til að ögra ísraelskum landnemum: „Okkar land, okkar himinn“
3
Erlent

Fljúga flugdrek­um til að ögra ísra­elsk­um land­nem­um: „Okk­ar land, okk­ar him­inn“

„Börn­in okk­ar eiga rétt á að leika sér og eiga raun­veru­legt og gott líf,“ seg­ir íbúi í þorpi á Vest­ur­bakk­an­um sem Ísra­el hef­ur þrengt að með ólög­mætri land­töku­byggð. Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar vara við aukn­um árás­um á palestínu­menn á svæð­inu. En íbú­ar efna til há­tíð­ar fyr­ir börn­in með and­lits­máln­ingu og flugdrek­um.
„Hringið bjöllunum“: Íbúar lýsa flóttanum undan mannskæðum gróðureldum á Spáni
4
Erlent

„Hring­ið bjöll­un­um“: Íbú­ar lýsa flótt­an­um und­an mann­skæð­um gróð­ureld­um á Spáni

Flest­ir sem lét­ust í skógar­eld­um á Spáni voru ferða­menn eða inn­flytj­end­ur sem höfðu sest að á svæð­inu í leit að frið­sælu lífi. Minnst tólf lét­ust á flótta und­an eld­tung­un­um, en þeg­ar eld­ur­inn nálg­að­ist þorp­ið Bed­ar fékk einn bæj­ar­full­trú­inn ör­vænt­ing­ar­full fyr­ir­mæli frá bæj­ar­stjór­an­um: Hlauptu í kirkj­una og hringdu bjöll­un­um til að vara íbúa við.
Ferðaþjónusta á hjara veraldar:  Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
5
ErlentGrænlandsmálið

Ferða­þjón­usta á hjara ver­ald­ar: Græn­lend­ing­ar læra af mis­tök­um Ís­lend­inga

Græn­land vill að ferða­þjón­usta standi und­ir fjöru­tíu pró­sent­um af út­flutn­ings­tekj­um lands­ins ár­ið 2035. At­hygli al­þjóða­sam­fé­lags­ins hef­ur beinst að þess­ari stærstu eyju heims og sér­fræð­ing­ar segja Banda­ríkja­for­seta hafa auk­ið áhuga á land­inu líkt og eld­gos­ið við „Eyja­fjalla­jök­ul“ gerði hér. Heim­ild­in rýndi í þró­un ferða­þjón­ust­unn­ar á Græn­landi sem hef­ur lært af ávinn­ing­um og mis­tök­um ná­granna­rík­is­ins Ís­lands.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár