Lést í gær á Landspítalanum af völdum Covid-19

Ellefta mann­eskjan á Íslandi lést af völdum Covid-19 í gær. 26 liggja nú á sjúkra­húsi vegna Covid-19.

Lést í gær á Landspítalanum af völdum Covid-19
Frá bráða­mót­töku Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjúk­lingur á Land­spít­al­anum, sem smit­aður var af kór­óna­veirunni Sars-cov-2, lést af völdum sjúk­dóms­ins Covid-19 í gær.

Þetta kemur fram á vef Land­spít­al­ans. 

Ekki koma fram frek­ari upp­lýs­ingar, svo sem aldur eða kyn hins látna.

„Land­spít­ali vottar fjöl­skyldu hans samúð,“ segir í stuttri til­kynn­ingu spít­al­ans.

67 smit greindust inn­an­lands í gær og eru nú fjórir á gjör­gæslu. 1.206 manns eru í ein­angrun og 2.823 í sótt­kví.

Nú hafa tæp­lega fjögur þús­und manns greinst með Covid-19 á Íslandi. Dán­ar­hlut­fallið er því um 0,3%. Gera má ráð fyrir því að raun­veru­legur fjöldi smita sé meiri og dán­ar­hlut­fall því lægra, en einnig er ljóst að þeir sem hafa greinst nýverið eru ekki allir lausir við sjúk­dóm­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár