„Þú vilt ekki að börnin þín séu að birtast á einhverjum lista“

17 og 20 ára gömul börn Willums Þórs Þórs­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, eru á kín­verska leynilist­anum, sem birtur var í Stund­inni.

„Þú vilt ekki að börnin þín séu að birtast á einhverjum lista“

Um 400 Íslend­ingar eru á upp­lýs­inga­list­anum, sem settur var saman af kín­verska fyr­ir­tæk­inu Zhenhua Data Information Technology. 

Meðal ann­arra eru 17 og 20 ára gömul börn Willums Þórs Þórs­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, á list­anum sem ætt­ingjar póli­tísks tengds aðila sem bendir til að Willum Þór sé einnig á list­anum.

Brynjólfur Darri WillumssonLeik­maður Breiða­bliks í fót­bolta.

Willum Þór segir aðspurður að honum finn­ist verst að börnin hans séu á umræddum lista. „Þetta er manni svo­lítið fjar­lægt. Maður verður nátt­úr­lega pínu hissa. Svo þegar þú ert búinn að útskýra þetta fyrir mér þá ætti ég kannski ekki að vera svo hissa. En svo spyr maður sig: Af hverju eru þeir að þessu?“ segir Willum Þór. 

„Þegar maður heyrir af því að börnin manns séu á svona lista þá verður maður óró­legur af því það er verið að blanda börn­unum manns inn í eitt­hvað svona. Bara eins og almennt er: Maður vill leyfa börn­unum sínum að vera ung og tær sem lengst; að þau þurfi ekki að líða fyrir neitt sem þú ert að sýsla við í póli­tík eða öðru,“ segir Willum Þór. „Þú vilt ekki að börnin þín séu að birt­ast á ein­hverjum lista af því þú ert í póli­tík.“

„Þú vilt ekki að börnin þín séu að birt­ast á ein­hverjum lista af því þú ert í póli­tík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Kínverski listinn: Utanríkisráðuneytið segir gagnasöfnunina stangast á við siðferði og lög
GreiningKínverski leynilistinn

Kín­verski list­inn: Utan­rík­is­ráðu­neytið segir gagna­söfn­un­ina stang­ast á við sið­ferði og lög

Sænskur sér­fræð­ingur um Kína telur að nafna­list­inn með 2,5 millj­ónum manna, þar af 4.000 Íslend­ingum, sé til marks um breytta utan­rík­i­s­tefnu Kína og auk­inn áhuga á öðrum ríkjum. Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að sam­bæri­legum upp­lýs­ingum um starfs­menn þess hafi ekki áður verið safnað saman svo vitað sé.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kínverski leynilistinn

Spáir kínverskri útþenslustefnu
ErlentKínverski leynilistinn

Spáir kín­verskri útþenslu­stefnu

Fregnir af gagna­söfnun kín­verskra yfir­valda um erlent áhrifa­fólk um allan heim vekja ekki síst spurn­ingar um fyr­ir­ætl­anir Kínverja í alþjóða­stjórn­málum í fram­tíð­inni og vax­andi ítök og áhrifa­mátt þeirra innan fjölda erlendra ríkja. Virtur en umdeildur banda­rískur fræði­maður segir Kínverja haga sér með sama hætti og Banda­ríkin hafi gert til að hösla sér völl á alþjóða­svið­inu á sínum tíma – það sé bæði áhyggju­efni og veg­vísir um fram­haldið.
Kínverski listinn: Utanríkisráðuneytið segir gagnasöfnunina stangast á við siðferði og lög
GreiningKínverski leynilistinn

Kín­verski list­inn: Utan­rík­is­ráðu­neytið segir gagna­söfn­un­ina stang­ast á við sið­ferði og lög

Sænskur sér­fræð­ingur um Kína telur að nafna­list­inn með 2,5 millj­ónum manna, þar af 4.000 Íslend­ingum, sé til marks um breytta utan­rík­i­s­tefnu Kína og auk­inn áhuga á öðrum ríkjum. Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að sam­bæri­legum upp­lýs­ingum um starfs­menn þess hafi ekki áður verið safnað saman svo vitað sé.
Íslenskt áhrifafólk kortlagt á kínverskum lista: „Mjög óþægilegt“
ErlentKínverski leynilistinn

Íslenskt áhrifa­fólk kort­lagt á kín­verskum lista: „Mjög óþægi­legt“

Um 400 Íslend­ingar eru á nafna­lista kín­versks fyr­ir­tækis sem teng­ist hernum í Kína. Stundin hefur list­ann undir höndum. Um er að ræða stjórn­mála­menn, sendi­herra, emb­ætt­is­menn, rík­is­for­stjóra og ætt­ingja þeirra. Tveir þing­menn segja að þeim finn­ist afar óþægi­legt að vita af því að þær séu á slíkum lista. Erlendir sér­fræð­ingar telja afar lík­legt að kín­verska ríkið hafi aðgang að list­anum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár