Kínverski listinn: Utanríkisráðuneytið segir gagnasöfnunina stangast á við siðferði og lög

Sænskur sér­fræð­ingur um Kína telur að nafna­list­inn með 2,5 millj­ónum manna, þar af 4.000 Íslend­ingum, sé til marks um breytta utan­rík­i­s­tefnu Kína og auk­inn áhuga á öðrum ríkjum. Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að sam­bæri­legum upp­lýs­ingum um starfs­menn þess hafi ekki áður verið safnað saman svo vitað sé.

Kínverski listinn: Utanríkisráðuneytið segir gagnasöfnunina stangast á við siðferði og lög

„Mitt mat á þessum lista er að ann­að­hvort er hann gerður að und­ir­lagi kín­verska rík­is­ins, sem er mögu­legt, eða þá að frum­kvæðið að list­anum er komið frá fyr­ir­tæk­inu sem gerir list­ann með það að mark­miði að selja aðgang að list­anum. Það er svona sem hlut­irnir virka í Kína núna,“ segir Torbjörn Lodén, einn af þekkt­ari sér­fræð­ingum Svía í mál­efnum Kína og pró­fessor emeritus við Stokk­hólms­há­skóla, aðspurður um list­ann með nöfnum ein­stak­linga, áhrifa­fólks í stjórn­málum, stjórn­kerf­inu og við­skipta­líf­inu, sem lekið hefur út til nokk­urra fjöl­miðla.

Stundin birti list­ann með helstu nöfn­unum sem þar koma fram í frétt á mánu­dag­inn var og vakti hann nokkrar umræður í sam­fé­lag­inu. 

Um 400 Íslend­ingar eru á upp­lýs­inga­list­anum, sem settur var saman af kín­verska fyr­ir­tæk­inu Zhenhua Data Information Technology. Starfs­menn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins eru sér­stak­lega áber­andi á list­anum. 

Banda­rískur fræði­maður, Christopher Balding, komst yfir list­ann með alls 2,5 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kínverski leynilistinn

Spáir kínverskri útþenslustefnu
ErlentKínverski leynilistinn

Spáir kín­verskri útþenslu­stefnu

Fregnir af gagna­söfnun kín­verskra yfir­valda um erlent áhrifa­fólk um allan heim vekja ekki síst spurn­ingar um fyr­ir­ætl­anir Kínverja í alþjóða­stjórn­málum í fram­tíð­inni og vax­andi ítök og áhrifa­mátt þeirra innan fjölda erlendra ríkja. Virtur en umdeildur banda­rískur fræði­maður segir Kínverja haga sér með sama hætti og Banda­ríkin hafi gert til að hösla sér völl á alþjóða­svið­inu á sínum tíma – það sé bæði áhyggju­efni og veg­vísir um fram­haldið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár