Íslenskt áhrifafólk kortlagt á kínverskum lista: „Mjög óþægilegt“

Um 400 Íslend­ingar eru á nafna­lista kín­versks fyr­ir­tækis sem teng­ist hernum í Kína. Stundin hefur list­ann undir höndum. Um er að ræða stjórn­mála­menn, sendi­herra, emb­ætt­is­menn, rík­is­for­stjóra og ætt­ingja þeirra. Tveir þing­menn segja að þeim finn­ist afar óþægi­legt að vita af því að þær séu á slíkum lista. Erlendir sér­fræð­ingar telja afar lík­legt að kín­verska ríkið hafi aðgang að list­anum.

Íslenskt áhrifafólk kortlagt á kínverskum lista: „Mjög óþægilegt“
Óþægi­legt Hanna Katrín Frið­riks­son og Halldóra Mogensen þing­konur segja að það sé óþægi­legt að vera á slíkum lista yfir áhrifa­fólk. Mynd: Jón Ingi

Tæplega 400 Íslend­ingar eru á leyni­legum upp­lýs­inga­lista kín­verska fyr­ir­tæk­is­ins Zhenhua, sem lekið hefur út til nokk­urra fjöl­miðla í heim­inum í gegnum banda­rískan fræði­mann, Christopher Balding, og ástr­alskt net­fyr­ir­tæki. Nöfn 2,5 milljón ein­stak­linga víða um heima er að finna á list­anum. Fyr­ir­tækið sem tók list­ann saman heitir Zhenhua Data Information Technology er dótt­ur­fé­lag fyr­ir­tækis sem er í eigu kín­verska hers­ins.

Stundin er með list­ann undir höndum og greinir nú frá 80 helstu nöfn­unum á list­anum, sem gefur vís­bend­ingu um umfang kín­versks eft­ir­lits­iðn­aðar. Frekari umfjöllun verður um list­ann í næsta prent­aða tölu­blaði Stund­ar­innar og hann birtur í heild sinni ásamt grein­ingu.

Kín­verski komm­ún­ista­flokk­ur­inn (CCP) er alls­ráð­andi í Kína, enda eini stjórn­mála­flokk­ur­inn, og má kalla landið alræð­is­ríki sökum þessa. Andstaða við flokk­inn er barin niður með harðri hendri og eru reglu­lega sagðar fréttir af því hvernig gagn­rýnendum Komm­ún­ista­flokk­inn er refsað í land­inu. 

Tvö börn Willums á list­anumTvö af börnum Willums Þórs Þórs­sonar …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kínverski leynilistinn

Spáir kínverskri útþenslustefnu
ErlentKínverski leynilistinn

Spáir kín­verskri útþenslu­stefnu

Fregnir af gagna­söfnun kín­verskra yfir­valda um erlent áhrifa­fólk um allan heim vekja ekki síst spurn­ingar um fyr­ir­ætl­anir Kínverja í alþjóða­stjórn­málum í fram­tíð­inni og vax­andi ítök og áhrifa­mátt þeirra innan fjölda erlendra ríkja. Virtur en umdeildur banda­rískur fræði­maður segir Kínverja haga sér með sama hætti og Banda­ríkin hafi gert til að hösla sér völl á alþjóða­svið­inu á sínum tíma – það sé bæði áhyggju­efni og veg­vísir um fram­haldið.
Kínverski listinn: Utanríkisráðuneytið segir gagnasöfnunina stangast á við siðferði og lög
GreiningKínverski leynilistinn

Kín­verski list­inn: Utan­rík­is­ráðu­neytið segir gagna­söfn­un­ina stang­ast á við sið­ferði og lög

Sænskur sér­fræð­ingur um Kína telur að nafna­list­inn með 2,5 millj­ónum manna, þar af 4.000 Íslend­ingum, sé til marks um breytta utan­rík­i­s­tefnu Kína og auk­inn áhuga á öðrum ríkjum. Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að sam­bæri­legum upp­lýs­ingum um starfs­menn þess hafi ekki áður verið safnað saman svo vitað sé.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár