Greiðsla til Hjaltalín stöðvuð út af gráa listanum

Dreif­ing­ar­að­ila var óheim­ilt að milli­færa á íslenskan banka­reikn­ing hljóm­sveit­ar­innar Hjalta­lín vegna veru Íslands á gráa lista FATF um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Greiðsla til Hjaltalín stöðvuð út af gráa listanum
Hjalta­lín Greiðsla til hljóm­sveit­ar­innar fór ekki fram vegna veru Íslands á gráa list­anum.

Vera Íslands á gráa list­anum yfir þau ríki sem ekki hafa gripið til full­nægj­andi aðgerða gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögn­un hryðju­verka varð til þess að hljóm­sveitin Hjalta­lín fékk ekki greiðslu fyrir tón­list sína í byrjun ágúst.

Ísland var sett á gráan lista hjá FATF, alþjóð­legum fjár­mála­að­gerða­hópi ríkja um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, í októ­ber í fyrra. Stjórn­völd mót­mæltu nið­ur­stöð­unni, en hafa síðan fylgt aðgerð­ar­á­ætlun til að láta fjar­lægja landið af list­anum.

Hjalta­lín átti inni greiðslu hjá erlendu fyr­ir­tæki sem sér um staf­ræna dreif­ingu tón­listar hljóm­sveit­ar­innar, sem nýverið gaf út nafn­lausa plötu. „Við áttum inni pen­ing hjá þeim en þau voru að breyta kerf­inu hjá sér þannig að ég þurfti að setja aftur inn ban­ka­upp­lýs­ing­arnar okkar,“ segir Steinþór Helgi Arn­steins­son umboðs­maður. „Nema að þá er bara Ísland ekki inni í list­anum sem er í boði. Spes að sjá nöfn eins og Sýrland, Sómalíu, Jemen og Súdan, lönd sem eru flokkuð sem þau spillt­ustu á jörð­inni, á list­anum en ekki Ísland, sem var í hóp með meðal ann­ars Norður-Kóreu og Suður-Súdan, yfir lönd sem ekki voru á list­anum.“

Í svörum frá fyr­ir­tæk­inu kom fram að Ísland væri eitt af þeim löndum sem ekki ætti að senda pen­ing til vegna hættu á pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Steinþór segir að hljóm­sveitin þurfi að finna aðra leið til að þiggja greiðsl­una.

„Mér finnst þetta aðal­lega sorg­lega grín­legt“

„Mér finnst þetta aðal­lega sorg­lega grín­legt,“ segir hann. „Við vorum bara að sækja okkur smá pen­ing sem við áttum inni þarna úti, enda vorum við að gefa út plötu sjálf með til­heyr­andi kostn­aði. Og í þessu árferði er erfitt, eða rétt­ara sagt ómögu­legt að fjár­magna sig með tón­leikum.“

Vona að Ísland fari af listanum í október

Íslensk stjórn­völd telja sig hafa lokið þeim aðgerðum sem þarf til að fjar­lægja Ísland af list­anum. Var það stað­fest á alls­herj­ar­fundi FATF í júní. „Á fund­inum var einnig sam­þykkt sam­hljóða að full­trúar sér­fræð­inga­hóps­ins muni koma til Íslands í vett­vangs­at­hugun til þess að stað­festa árang­ur­inn,“ sagði í frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins 24. júní.

„Ekki hefur verið ákveðin end­an­leg dag­setn­ing slíkrar athug­unar, en stefnt er að því að vett­vangs­at­hug­unin fari fram í byrjun sept­em­ber næst­kom­andi, að því gefnu að COVID-19 standi því ekki í vegi. Verði árangur Íslands stað­festur í vett­vangs­at­hug­un­inni má gera ráð fyrir að lögð verði fram til­laga um að Ísland verði tekið af svo­nefndum gráa lista FATF á fundi FATF í októ­ber,“ sagði einnig í frétt­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár