Félag fréttamanna lýsir undrun og vonbrigðum með gagnrýnislausa birtingu ásakana Samherja

Félag frétta­manna segir Samherja grafa undir fjöl­miðlum með ásök­unum á hendur Helga Seljan í mynd­bandi. Fjöl­miðlar hafi birt ásak­anir Samherja gagn­rýn­is­laust í morgun.

Félag fréttamanna lýsir undrun og vonbrigðum með gagnrýnislausa birtingu ásakana Samherja
For­stjóri Samherja Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur ítrekað rætt um þátt Helga Seljan og RÚV í því að hús­leit var gerð hjá Samherja eftir umfjöllun Kast­ljóss árið 2012.

Félag frétta­manna gagn­rýnir að „stór­fyr­ir­tækið Samherji skuli veit­ast að per­sónu Helga Seljan frétta­manns með ómak­legum hætti“. Þekkt sé að fjár­sterkir aðilar grafi undan trausti á fjöl­miðlum sem skapi hættu fyrir lýð­ræðið.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá félag­inu sem Alma Ómars­dóttir for­maður skrifar undir. Frétt­blaðið fjall­aði á for­síðu í dag um óút­komið mynd­band sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja sem birt var á YouTube í morgun. Í því er haldið fram að Helgi hafi árið 2012 byggt umfjöllun sína um meint brot Samherja á gjald­eyr­is­lögum í Kast­ljósi á gögnum sem hafi verið röng, hann hafi ýmist breytt umræddum gögnum eða falsað þau.

„Stjórn Félags frétta­manna lýsir einnig undrun sinni og von­brigðum með að sumir fjöl­miðlar hafa tekið algjör­lega gagn­rýn­is­laust upp ásak­anir og fram­setn­ingu í mynd­bandi stór­fyr­ir­tæk­is­ins sem birt var í morgun,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Helgi sjálfur, útvarps­stjóri og frétta­stjóri Rík­is­út­varps­ins hafa öll hafnað ásök­unum Samherja. Svaraði Helgi þeim í löngu máli í færslu sem Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks, birti fyrir hönd þátt­ar­ins.

„Myndband fyr­ir­tæk­is­ins, sem birt var í dag, virð­ist hafa verið unnið til þess eins að vekja efa­semdir um rétt­mæta umfjöllun fjöl­miðla um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir í yfir­lýs­ingu Félags frétta­manna. „Það er áhyggju­efni að for­svars­menn stór­fyr­ir­tækja, sem fjöl­miðlar fjalla eðli­lega um, skuli velja að reyna að gera ein­staka fjöl­miðla­menn tor­tryggi­lega í stað þess að svara efn­is­lega þeim atriðum sem fram hafa komið í umfjöllun fjöl­miðla um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Það vekur jafn­framt áhyggjur að fyr­ir­tækið skuli birta slíkar ávirð­ingar í gervi heim­ilda­þáttar og grafa þannig undan fjöl­miðlum almennt.“

Yfirlýsingin í heild sinni:

Stjórn Félags frétta­manna gagn­rýnir harð­lega að stór­fyr­ir­tækið Samherji skuli veit­ast að per­sónu Helga Seljan frétta­manns með ómak­legum hætti. Myndband fyr­ir­tæk­is­ins, sem birt var í dag, virð­ist hafa verið unnið til þess eins að vekja efa­semdir um rétt­mæta umfjöllun fjöl­miðla um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins.

Það er áhyggju­efni að for­svars­menn stór­fyr­ir­tækja, sem fjöl­miðlar fjalla eðli­lega um, skuli velja að reyna að gera ein­staka fjöl­miðla­menn tor­tryggi­lega í stað þess að svara efn­is­lega þeim atriðum sem fram hafa komið í umfjöllun fjöl­miðla um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Það vekur jafn­framt áhyggjur að fyr­ir­tækið skuli birta slíkar ávirð­ingar í gervi heim­ilda­þáttar og grafa þannig undan fjöl­miðlum almennt.

Þekkt er víða um heim að fjár­sterkir aðilar beiti ýmsum aðferðum til að vekja efa­semdir um frétta­flutn­ing sem að þeim snýr. Það skapar þá hættu að grafið sé undan trausti á fjöl­miðlum og að fjöl­miðlar veigri sér við að fjalla um ein­staka aðila. Af því er mikil hætta búin fyrir lýð­ræð­is­legt sam­fé­lag sem byggir á því að almenn­ingur fái að vita hvað ráða­menn í stjórn­málum og áhrifa­menn í við­skiptum og atvinnu­lífi aðhaf­ast. Slíkt hefur legið í loft­inu síðan Kveikur, Stundin og Al Jazeera fjöll­uðu um Sam­herj­a­skjölin síð­ast­liðið haust.

Stjórn Félags frétta­manna lýsir einnig undrun sinni og von­brigðum með að sumir fjöl­miðlar hafa tekið algjör­lega gagn­rýn­is­laust upp ásak­anir og fram­setn­ingu í mynd­bandi stór­fyr­ir­tæk­is­ins sem birt var í morgun.

Alma Ómars­dóttir, for­maður Félags frétta­manna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár