„Þetta er alger paradís“

Astrid Boysen, hár­greiðslu­meist­ari og starfs­maður hjá Hårklinikken á Íslandi, ætlar að vera í sumar í nokkrar vikur fyrir norðan. Þar eru hún og sam­býl­is­maður hennar að koma sér upp sum­ar­bú­stað.

„Þetta er alger paradís“
Himneskt útsýni úr bústaðnum Astrid Boysen, hár­greiðslu­meist­ari og starfs­maður hjá Hårklinikken, og sam­býl­is­maður hennar byggðu í fyrra­sumar sum­ar­bú­stað í Fljót­unum.

Astrid Boysen, hár­greiðslu­meist­ari og starfs­maður hjá Hårklinikken, og sam­býl­is­maður hennar byggðu í fyrra­sumar sum­ar­bú­stað í Fljót­unum og í sumar verður klárað að inn­rétta hann og byggja pall fyrir framan.

„Sum­ar­bú­stað­ur­inn stendur við Stíflu­vatn og ég held að þetta sé fal­leg­asti staður á land­inu. Þetta er alger para­dís. Við sjáum frá bústaðnum vatnið, fal­lega sveit­ina og fjöllin. Útsýnið er himneskt. Við kúp­lum okkur út þegar við erum þarna. Það er svo gott að kom­ast í kyrrð­ina og fjöllin og fá ork­una úr land­inu okkar. Það er dásam­legt. Það er eng­inn vegur að bústaðnum þannig að við förum þangað á bát eða fót­gang­andi á sumrin en á vet­urna þá eru það skíðin eða snjó­sleði.“

Astrid hefur víða gengið á svæð­inu. Hún gengur upp á fjöll og um dali og hjólar á fjalla­hjóli á stígum. „Þetta gefur mér mikið.“ Hún talar um sér­stöðu íslensku nátt­úr­unnar og ork­una. Orku íslensku nátt­úr­unnar. Og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðasumarið 2020

Gleymdi garður töframannsins i Tungudal
NærmyndFerðasumarið 2020

Gleymdi garður töfra­manns­ins i Tungudal

Á Ísafirði er að finna fal­inn högg­mynda­garð ljós­mynd­ar­ans, lista­manns­ins og töfra­manns­ins Martinus Simson sem var danskur og sett­ist að á Íslandi árið 1916. Simsons-garður er stað­settur í Tungudal þar sem Simson fékk úthlut­aða lóð á þriðja ára­tugnum en í dag liggur garð­ur­inn í órækt, fal­inn minn­is­varði um merki­legan og list­rænan ein­stak­ling með ástríðu fyrir skóg­rækt á Íslandi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár