Í faðmi vestfirsku Alpanna

Vest­firðir bjóða upp á ótelj­andi göngu­leiðir, auð­veldar og erf­iðar og allt þar á milli. Ómar Smári Krist­ins­son göngu­garpur, sem hefur skrifað ferða­bækur fyrir hjól­reiða­fólk, kemur hér með hug­myndir að þremur mis­erf­iðum göngu­leiðum.

Í faðmi vestfirsku Alpanna
Holtsoddi Auðvelt er að aka eða hjóla út að bryggj­unni við Holtsodda en ganga út á odd­ann.

Ómar Smári Krist­ins­son býr á Ísafirði þar sem hann segir að sé þétt net göngu­stíga, vega, fjalla­slóða og ómerktra göngu­leiða nálægt byggð og upp um allar heiðar. Hann segir að þetta sé drauma­land göngu- og hjóla­fólks.

Ómar SmáriHann segir Vest­firði drauma­land göngu- og hjóla­fólks.

„Samt er spenn­andi að sækja vatnið yfir læk­inn – fara yfir í næsta fjörð. Önund­ar­fjörður er ævin­týra­land með mik­illi nátt­úru­feg­urð og mörgum göngu­leiðum og hafa margar þeirra verið kort­lagðar þó fáar séu merktar í lands­lag­inu. Nær­tæk­ast og auð­veld­ast er að aka eða hjóla út að bryggj­unni við Holtsodda en ganga út á odd­ann. Vilji fólk ganga meira þá er hægt að ganga um níu kíló­metra hring á jafn­sléttu: um 3,5 kíló­metra á sand­strönd odd­ans, um tvo kíló­metra með­fram Vest­fjarða­vegi og um 3,5 kíló­metra á fáförnum heim­reiðum og gömlum akvegi sem liggur á bak við prests­setrið í Holti. Ef …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðasumarið 2020

Gleymdi garður töframannsins i Tungudal
NærmyndFerðasumarið 2020

Gleymdi garður töfra­manns­ins i Tungudal

Á Ísafirði er að finna fal­inn högg­mynda­garð ljós­mynd­ar­ans, lista­manns­ins og töfra­manns­ins Martinus Simson sem var danskur og sett­ist að á Íslandi árið 1916. Simsons-garður er stað­settur í Tungudal þar sem Simson fékk úthlut­aða lóð á þriðja ára­tugnum en í dag liggur garð­ur­inn í órækt, fal­inn minn­is­varði um merki­legan og list­rænan ein­stak­ling með ástríðu fyrir skóg­rækt á Íslandi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár