Alltaf berfættur á hjólinu

Valdimar Elíasson seg­ist ekki finna fyrir kulda enda hafi hann verið sjó­hundur í tutt­ugu ár og víli ekk­ert fyrir sér.

Alltaf berfættur á hjólinu
Segist fá óskeypis fóta­bað Valdimar hjólar allan árs­ins hring og þegar rigni fái hann ókeypis fóta­bað. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ég er alltaf ber­fættur á hjól­inu. Ég finn ekk­ert fyrir kulda, ég var sjó­hundur til tutt­ugu ára og víla ekk­ert fyrir mér. Svo fæ ég ókeypis fóta­bað þegar rignir. Ég er á hjól­inu allt árið um kring. Sumir hafa spurt hvort ég hafi ekki neinar áhyggjur af því að meiða mig ef eitt­hvað kemur fyrir, að skrapa sundur fæt­urna, en ég svara þeim að það komi ekk­ert fyrir mig. Ég keyri bara eins og maður, er á lög­legum hraða, ekk­ert að prjóna eða hekla eða djöfl­ast. Ég nota hjólið til að kom­ast leiðar minnar og mér til skemmt­unar, það er ægi­lega þægi­legt, þarf aldrei að hafa áhyggjur af bíla­stæðum. Það er hægt að koma þessu fyrir hvar sem er, upp á rönd ef maður vill.

Ég er búinn að hjóla meira og minna síðan 1974 þegar ég eign­að­ist mitt fyrsta hjól, Suzuki 380. Þá var ég austur á Horna­firði, ég var á bát þarna fyrir austan og fór á milli þaðan og hingað suður. Núna er ég á þessu hjóli, Hondu 750 spi­rit, hel­víti skemmti­legu hjóli. Ég er nú hættur að fara svona langar leiðir, fer núna kannski lengst til Ólafs­víkur. Ég er upp­al­inn í Ólafsvík, Óls­ara­and­skoti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár