Bretarnir hafa krárnar, við höfum sundlaugarnar

Guð­mundur Þór Norðdahl, dýra­vinur og stofn­andi Katta­skrár­innar, sakn­aði sund­laug­anna heitt í sam­komu­bann­inu.

Bretarnir hafa krárnar, við höfum sundlaugarnar

Í Bret­landi hafa þeir krárnar sínar en við höfum sund­laug­arnar. Það jafn­ast ekk­ert á við lauga­menn­ing­una hérna heima. Sund­laug­arnar eru stór­kost­legar enda hef ég stundað þær árum saman. Að fara í heitan pott, sánu og gufu­bað er svo rosa­lega gott lík­am­lega og and­lega að það hálfa væri nóg. Ég er ekki hissa á að það hafi legið við upp­þotum þegar sund­laug­unum var lokað.

Ég er einn af þeim sem beið óþreyju­fullur eftir að sund­laug­arnar opn­uðu aftur eftir sam­komu­bann. Ég fór í sund strax á fyrsta degi. Þar voru allir skæl­bros­andi. Skæl­bros­andi í pott­unum, skæl­bros­andi í sjóð­andi eld­heitu sán­unni. Það var mikil stemn­ing og mikið spjallað um hvað þetta væri nú dásam­legt. „Nú kann fólk kannski bara enn þá betur að meta laug­arnar.“ Það var það sem fór í gegnum hug­ann á mér þegar ég sá þessi bros­andi and­lit. 

Hvaða laug er best? Það fer eftir smekk hvers og eins en laug­arnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru allar fínar. Svo má ekki gleyma laug­unum um allt land, bæði þessum nýju og öllum leynilaug­unum. Ég þekki þær eina og eina en má víst ekki segja frá þeim. Heita vatnið er okkar mesta auð­lind, það er engin spurn­ing um það. Það er svo miklu verð­mæt­ara og stór­kost­legra en flestir gera sér grein fyrir. Það ætti auð­vitað að vera í ævar­andi þjóð­ar­eign – en það er önnur saga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár