Dofri ásakar heila fjölskyldu um ofbeldi sem réttlætingu fyrir brottnámi barnsins

Dof­ri Her­manns­son, for­maður Fé­lags um for­eldra­jafn­rétti, rétt­lætir brott­nám tíu ára dótt­ur sinn­ar í yfir­lýs­ingu. Þar sak­ar hann fjóra ein­stak­linga, meðal ann­ars dóttur sína og stjúp­dóttur, um of­beldi gegn stúlkunni og kveðst ekki ætla að leyfa móð­ur hennar að hitta hana. Hann hef­ur tek­ið stúlk­una úr skóla og fer huldu höfði.

Dofri ásakar heila fjölskyldu um ofbeldi sem réttlætingu fyrir brottnámi barnsins

Dofri Her­manns­son sendi Kvenna­blað­inu yfir­lýs­ingu í morgun þar sem hann greindi því að hann hefur ekki í hyggju að leyfa tíu ára gam­alli dóttur sinni að fara aftur til móður sinnar fyrr en barna­vernd­ar­yf­ir­völd hafi  kom­ist að nið­ur­stöðu í mál­inu. Sagði hann að móðir barns­ins hefði beitt það ára­löngu and­legu og lík­am­legu ofbeldi. Sakaði hann eig­in­mann barns­móð­ur­innar og systur stúlkunnar um að taka þátt í and­lega ofbeld­inu með „afar ógeð­felldum og grimmum hætti“. Þá hefur hann tekið dóttur sína úr grunn­skóla og hefur hún ekki mætt í skóla í þrjá daga.

Dofri er for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti og situr í jafn­rétt­is­ráði, sem er ráð­gef­andi ráð­herra í stefnu­mót­andi ákvörð­unum um jafn­rétt­is­mál.

Fjölskyldan hefur áhyggjur 

Rúm vika er liðin frá því að systur stúlkunnar, þær Katrín og Kolfinna Arn­dís­ar­dætur, 28 ára gömul fyrr­ver­andi stjúp­dóttir Dofra og 21 árs gömul dóttir hans, greindu frá ástæðum þess að þær tóku sjálfar ákvörðun um að umgang­ast ekki föður sinn og stjúp­föður. Lýstu þær and­legu ofbeldi og ofríki af hans hálfu og sögðu hann mark­visst hafa reynt að sverta móður þeirra, meðal ann­ars með ásök­unum um ofbeldi og geð­veiki. Frásögn þeirra var and­svar þeirra við opin­berri umræðu af hálfu Dofra, sem full­yrt hefur að stúlk­urnar hefðu hætt umgengni við hann vegna þess að móðir þeirra hafi beitt þær for­eldrafirr­ingu.

Sú eldri, Katrín ákvað þar af leið­andi að slíta sam­skiptum við Dofra skömmu eftir skilnað hans við móður hennar. Kolfinna var hins vegar í reglu­bund­inni umgengni við hann næstu ár á eftir. Eftir meið­andi sam­skipti á sextán ára afmæl­is­dag­inn sinn tók hún ákvörðun um að við­halda ekki frek­ari sam­skiptum við föður sinn.

Yngsta dóttir Dofra, sem er tíu ára gömul, hefur hins vegar verið áfram í reglu­bund­inni umgengni við báða for­eldr­anna. Hún er með lög­heim­ili hjá móður sinni en dvelur hjá föður sínum aðra hverja viku. Hún átti að snúa aftur heim til móður sinnar á föstu­dag, en fjöl­skyldan hefur hvorki séð hana síðan og né fengið upp­lýs­ingar um það hvar hún er nið­ur­komin með föður sínum. Þess í stað sendi Dofri barns­móður sinni bréf með ásök­unum um ofbeldi. 

Systir stúlkunnar, Katrín Arn­dís­ar­dóttir, lýsti áhyggjum fjöl­skyld­unnar af stúlkunni í sam­tali við Stundina í gær. „Við teljum að hún sé í mjög erf­iðum aðstæðum,“ sagði Katrín. „Við erum miður okkar.“

Málið hefur verið til­kynnt barna­verndar- og lög­reglu­yf­ir­völdum. Dofri hefur hins vegar neitað að veita upp­lýs­ingar um hvar hann sé staddur á land­inu eða hvenær hann hafi í hyggju að skila barn­inu aftur heim til móður sinnar. 

Sakar barnsmóður sína um ofbeldi

Dofri stað­festi í sam­tali við blaða­mann Stund­ar­innar í gær að hann ætli sér ekki að skila barn­inu til móður sinnar. Meinaði hann blaða­manni að hafa nokkuð eftir sér um ástæður þess og lagð­ist hart gegn umfjöllun um málið vegna þess að það væri barn­inu ekki fyrir bestu að ræða aðstæð­urnar á opin­berum vett­vangi. Þrátt fyrir það sendi hann frá sér yfir­lýs­ingu á Kvenna­blaðið í morgun, þar sem hann greinir frá ástæðum sínum. Þar sakar hann móður barns­ins um ofbeldi, segir málið hafa verið til­kynnt til barna­verndar þar sem það sé nú í far­vegi. Barninu verði ekki skilað aftur fyrr en nið­ur­staða sé komin í málið. 

Yfir­lýs­ing Dofra var ekki send Stund­inni. Hana má hins vegar lesa í heild sinni á Kvenna­blað­inu.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur móðir barns­ins ekki verið til­kynnt áður vegna meints ofbeldis. Dofri hefur hins vegar áður sakað hana um ofbeldi gegn sér. Eins hefur hann sakað hana um að eitra fyrir sam­skiptum hans við dæt­urnar. Upp­komnar dætur hans hafa hins vegar hafnað slíkum ávirð­ingum og sagt að þær hafi tekið sínar ákvarð­anir sjálfar, vegna meið­andi sam­skipta við hann.

Engu að síður hefur Dofri byggt bar­áttu sína fyrir for­eldra­jafn­rétti á þessu, og kenn­ingum um for­eldra­úti­lokun.

Segist vera að bjarga barninu

Í yfir­lýs­ing­unni sem hann sendi frá sér í morgun seg­ist hann hafa barist fyrir því und­an­farin ár að sam­fé­lagið opni augun fyrir því „alvar­lega ofbeldi“ sem for­eldra­úti­lokun sé: „Þeirri til­finn­inga­legu mis­notkun þegar annað for­eldrið beitir börnum sínum í hat­urs­fullu stríði við hitt for­eldrið. Fjöldi for­eldra er í þess­ari stöðu, að missa sam­band við börnin sín, vegna heiftar hins for­eldr­is­ins.“

Félag um for­eldra­jafn­rétti hefur meðal ann­ars lagt áherslu á að ná fram sam­þykkt svo­kall­aðs tálm­un­ar­frum­varps á Alþingi, sem gera myndi tálmun á umgengni refsi­verða. Verði frum­varpið sam­þykkt mun tálmun á umgengni varða allt að fimm ára fang­elsi fyrir það for­eldri sem sviptir hitt umgengni við barnið sitt. 

Í yfir­lýs­ingu Dofra segir nú að margir for­eldrar séu í þeirri stöðu að þurfa að tálma umgengni vegna hættu á því að börnin verði fyrir ofbeldi af hálfu hins for­eldr­is­ins. „Barn sem er beitt ofbeldi af móður á jafn mik­inn rétt á að vera bjargað og barn sem er beitt ofbeldi af föður.“ Sem for­sjár­for­eldri bæri honum að vernda dóttur sína. „Ég mun halda henni eins fjarri þessu ömur­lega stríði og mér er mögu­legt,“ sagði Dofri.

Að lokum sagð­ist hann von­ast til þess að stjúp­faðir stúlkunnar og eldri systur hennar, dóttir Dofra og stjúp­dóttir, þær Katrín og Kolfinna, sæu „sinn þátt í þessu sorg­lega máli.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár