Dofri nemur dóttur sína á brott

Tíu ára gömul dóttir Dofra Her­manns­sonar er horfin móð­ur­fjöl­skyldu sinni. Stúlkan er í jafnri for­sjá móður og föður og átti að snúa aftur til móður sinnar fyrir fjórum dögum. Dofri er for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti, sem berst fyrir jafnri umgengni for­eldra við börn sín.

Dofri nemur dóttur sína á brott

Barna­vernd Reykja­víkur hefur óskað eftir upp­lýs­ingum frá Dofra Her­mann­syni varð­andi hvar hann heldur til með tíu ára gamla dóttur sína, sem átti að fara aftur til móður sinnar síð­ast­lið­inn föstu­dag. Dofri er for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti, sem berst fyrir jafnri umgengni for­eldra, og er með­limur í Jafn­rétt­is­ráði sem er ráð­gef­andi fyrir ráð­herra í jafn­rétt­is­málum.

Barnið er með lög­heim­ili hjá móður sinni en er hjá föður sínum aðra hverja viku. Móðir stúlkunnar, systur hennar tvær og stjúp­faðir hafa því ekki séð hana eða heyrt af því hvar hún er nið­ur­komin í fjóra daga, þótt hún ætti að vera á heim­ili þeirra. Stúlkan mætti hvorki til skóla í dag né á föstu­dag.

Þetta stað­festir systir stúlkunnar, Katrín Arn­dís­ar­dóttir, fyrr­ver­andi stjúp­dóttir Dofra. „Við höfum miklar áhyggjur af henni, því við teljum að hún sé í mjög erf­iðum aðstæðum,“ segir Katrín. „Við erum miður okkar.“ 

Sakar móður barnsins um ofbeldi

Á föstu­dag sendi Dofri barns­móður sinni bréf þar sem hann ásak­aði hana um að beita dóttur þeirra ofbeldi og kvaðst ekki ætla að senda hana aftur inn á heim­ilið. Sagði hann alla fjöl­skyld­una; barns­móður sína, eig­in­mann hennar og tvær upp­komnar dætur, þær Katrínu og Kolfinnu Arn­dís­ar­dóttur, beita sér gegn yngstu dóttur sinni. 

Dofri stað­festi í sam­tali við Stundina að hann hefði ekki í hyggju að senda dóttur sína aftur til móður sinnar, en neit­aði að tjá sig opin­ber­lega um málið. Lagðist hann ein­dregið gegn umfjöllun á þeim for­sendum að það væri barn­inu fyrir bestu að greina ekki frá aðstæðum. 

 „Við höfum miklar áhyggjur af henni“

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa engar til­kynn­ingar borist yfir­völdum varð­andi meint ofbeldi móð­ur­innar fram til þessa. Áður hefur hann sakað barns­móður sína um að beita sig ofbeldi og eitra fyrir sam­skiptum hans við börnin. Hefur hann byggt bar­áttu sína fyrir for­eldra­jafn­rétti á því og kenn­ingum um holl­ustuklemmu, for­eldrafirr­ingu og for­eldra­úti­lokun. 

Síðast þann 2. maí tjáði Dofri sig í við­tali við Kvenna­blaðið um þessi mál og þar sagði hann meðal ann­ars að það væri eins og barn­inu hans hefði verið rænt. „Ég veit ekki hvort það er hægt að lýsa þessu fyrir fólki sem hefur ekki lent í þessu en það er eins og barn­inu manns hafi verið rænt og öllum sé sama,“ sagði Dofri þar. For­eldra­úti­lokun væri ofbeldi sem væri mik­il­vægt að ræða: „Þetta er grafal­var­legt ofbeldi sem er að eyði­leggja líf fjölda fólks á hverjum ein­asta degi.“

Dætur hans stigu fram 

Bréf Dofra barst nokkrum dögum eftir að fyrr­ver­andi stjúp­dóttir hans og dóttir, þær Katrín og Kolfinna Arn­dís­ar­dóttir, stigu fram og greindu frá ástæðum þess að þær slitu sam­skiptum við hann. Þar sögðu þær rangt að móðir þeirra hefði eitrað hug þeirra, þær hefðu sjálfar tekið ákvörðun um að hafna frek­ari sam­skiptum við föður sinn eftir að hann sýndi mikið marka­leysi gagn­vart þeim og lýstu and­legu ofbeldi, gas­lýs­ingu og ofríki af hans hálfu.

Dæturnar tvær, sem nú eru 21 árs og 28 ára, sögðu hann mark­visst hafa unnið að því að sverta móður þeirra og grafa undan sam­skiptum þeirra við hana, meðal ann­ars með því að saka hana um geð­veiki, ofbeldi og ofríki í aðdrag­anda skiln­að­ar­ins og eftir hann. Greindu þær meðal ann­ars frá því að fjöl­skyldan hefði óskað eftir nálg­un­ar­banni vegna fram­göngu hans eftir að þær ákváðu að slíta sam­skiptum við hann, en því hefði verið hafnað. Fjöl­skyld­unni hafi ekki verið talin stafa ógn af honum, þar sem engin saga var um lík­am­legt ofbeldi. 

Dofri neit­aði að bregð­ast við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar vegna við­tals­ins, en sendi frá sér yfir­lýs­ingu eftir að við­talið birt­ist þar sem hann fór fram á að byggja upp sam­skiptin við dætur sínar á ný.  Þær höfðu hins vegar beðið hann um að hætta og láta sig í friði. 

Nýtur stuðnings félagsins 

Daginn áður en Dofri skil­aði dóttur sinni ekki aftur heim til móður sinnar bár­ust tvær yfir­lýs­ingar frá Félagi um for­eldra­jafn­rétti.

Í fyrri yfir­lýs­ing­unni voru gerðar „alvar­legar athuga­semdir“ við frétta­flutn­ing Stund­ar­innar um for­eldra­úti­lokun. Í seinni yfir­lýs­ingu var lýst yfir stuðn­ingi við Dofra í kjöl­far við­tals­ins við dóttur hans og stjúp­dóttur, sem vara­for­maður félags­ins skil­greindi sem „árásir“ dætra Dofra gegn föður sínum. 

Félag um for­eldra­jafn­rétti hefur meðal ann­ars lagt áherslu á að ná fram sam­þykkt svo­kall­aðs tálm­un­ar­frum­varps á Alþingi, sem gera myndi tálmun á umgengni refsi­verða. Verði frum­varpið sam­þykkt mun tálmun á umgengni varða allt að fimm ára fang­elsi fyrir það for­eldri sem sviptir hitt umgengni við barnið sitt. 

Dofri hefur nú verið til­kynntur til barna­verndar- og lög­reglu­yf­ir­valda vegna máls­ins, segir Katrín, meðal ann­ars af henni. „Við treystum því að málið verði leyst far­sæl­lega af barna­vernd­ar­yf­ir­völdum,“ segir hún. 

Hann hefur hins vegar neitað að veita upp­lýs­ingar um það hvar hann er staddur á land­inu og hvenær hann hyggst skila dóttur sinni aftur heim til móður sinnar. 

Dofri hefur nú sent frá sér yfir­lýs­ingu til birt­ingar í Kvenna­blað­inu, þar sem hann sakar fjöl­skyldu stúlkunnar, þar á meðal dóttur sína og stjúp­dóttur, um ofbeldi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár