Heilbrigt ástand að vera hamingjusamur

Hrefna Guð­munds­dóttir vinnu­sál­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofnun lærði margt um ham­ingj­una af rann­sóknum og líka af afa sínum, sem sagði að besta ráðið við van­líðan væri að vera góður við ein­hvern og taldi göngut­úra allra meina bót.

Heilbrigt ástand að vera hamingjusamur

Margt hefur rekið á fjörur Hrefnu Guð­munds­dóttur, vinnu­sál­fræð­ings hjá Vinnu­mála­stofnun og með­höf­undar bók­ar­innar Why are Icelanders so happy, þegar hún hefur stúd­erað ham­ingj­una, sem lengi hefur verið henni hug­leikin.

„Það kom mér á óvart í árdaga rann­sókna á sviði ham­ingju að það væri heil­brigt ástand að vera til­tölu­lega ham­ingju­samur. Í einni þeirra laut rann­sókn­ar­spurn­ingin að því hversu ham­ingju­samir ein­stak­ling­arnir væru á kvarð­anum frá einu pró­senti til tíu. Ef við skoðum aðeins kvarð­ann um það hversu ham­ingju­söm við erum á bil­inu eitt til tíu, þá telst það ekki heil­brigt ástand að vera ein­ungis fimm í ham­ingju, nema þegar við tök­umst á við mjög erfið verk­efni líkt og sorg og djúp­stæð áföll. Að vera sjö í ham­ingju er nær því sem mann­eskj­unni er eðl­is­lægt. Það er mikil feg­urð í því, ekki satt? Eins þótti mér virki­lega ánægju­legt þegar að ég komst að því að ham­ingjan vex frekar með árunum heldur en hitt, þótt auð­vitað sé það ein­stak­lings­bundið. Ef við ætlum að reyna að mæla ham­ingj­una eins og við mælum sárs­auka, nota kvarð­ann frá einum til tíu, ef mesta hugs­an­lega ham­ingju­talan sé tíu og sú minnsta hugs­an­lega einn, þá er einnig deilt um það hvort betra sé að vera með töl­una átta eða tíu í ham­ingju. Hugs­an­lega er þetta eina prófið í heim­inum þar sem átta er kannski betri en tía. Í þess­ari hug­mynd felst að í átt­unni býr meiri yfir­vegun og sátt, taka því sem að höndum ber og mæta örlögum sínum. Að í tíunni sé mögu­lega bog­inn full spenntur og því líkur á að ham­ingju­á­standið sé tíma­bundið og því minni far­sæld til lengdar. Nema að ein­stak­ling­ur­inn  nái að vera mjög oft og til langs tíma í tíu í ham­ingju sem hlýtur að vera algjör sæla. Það var ekki nema 1% svar­enda við spurn­ing­unni sem svör­uðu á þá leið að þeir skildu ekki spurn­ing­una.“

Gleðin Skálað fyrir líf­inu í íslenskri nátt­úru.

„Þetta er allt að koma“ 

„Þegar ég hugsa um mína eigin ham­ingju og þau bjarg­ráð sem ég hef lært þá finnst mér ég búa ekki síst að þeim bjarg­ráðum sem afi minn kenndi mér. Hann var fæddur árið 1920 og ein af hans ráð­legg­ingum var þess lút­andi að þegar mér liði illa væri besta ráðið að vera góð við ein­hvern. Einnig sagði hann oft að það væri ekki til það sem ekki rætt­ist úr og að margir kviðu þeim degi sem aldrei kæmi, það tók mig þó ein­hverja ára­tugi að skilja þetta. Hann afi minn var einnig á því að það að ganga væri besta lyfið og ég er ekki frá því að þetta sé allt saman rétt hjá honum. Við finnum þetta á eigin skinni að ef við göngum tals­verðan spotta þá fer eitt­hvað í gang, það er sem hug­ur­inn létt­ist og maður fær jafn­vel nýja sýn og nýjar lausnir. Eins er það með söng­inn, við syngjum ekki lengi án þess að brúnin létt­ist. Ella þurfum við að hætta að syngja vegna harms.

En öllu má nú þó ofgera, alla­vega fannst ömmu minni það þegar hún var að fara að fæða sitt fyrsta barn og kvald­ist af hríðum og afi stakk þá upp á því hvort það væri ekki grá­upp­lagt að rölta hring­inn í kringum þorpið. Mér skilst að amma mín hafi lítið hresst við þessa upp­á­stungu. Við afi fórum margar göngur í Fljóts­hlíð­inni og í kringum Hvols­völl og þar voru málin skegg­rædd og gat ég trúað honum fyrir hinum ýmsu raunum og gleði­efnum, hann stapp­aði í mig stál­inu og á sama tíma var  ekk­ert í umhverf­inu sem trufl­aði sam­ver­una.

„Hún var að fara að fæða sitt fyrsta barn og kvald­ist af hríðum og afi stakk þá upp á því hvort það væri ekki grá­upp­lagt að rölta hring­inn“

Hún amma mín reynd­ist mér einnig ráða­góð og ráð­lagði mér að leggja mig fram við að trúa því ávallt að eitt­hvað gott gæti gerst.

Við vin­kon­urnar leystum oft málin hér á árum áður sím­leiðis eða í göngut­úrum. Við ræddum eitt og annað sem við vorum að takast á við hverju sinni sem gátu verið hin ýmsu lífs­verk­efni. Samtölin okkar end­uðu yfir­leitt á því að setn­ing­unni „þetta er allt að koma“ var flaggað. Á þeim augna­blikum vorum við farnar að hlæja að hver annarri, þó ekki nema vegna eigin ófarn­aðar, ólukku og óheppni. Þessi litla gild­is­hlaðna setn­ing var svona áminn­ing til okkar um að þetta væri tíma­bundið ástand þegar upp var staðið og að nú færi þetta allt að koma hjá okkur. Að ástandið gæti nú varla versnað meira úr þessu.“

Með syni sínum Við viljum vera með þeim sem okkur eru kær­astir og mikið er gott að knúsa. Hrefna og sonur hennar Jóhannes.
Með vin­konuHamingja er sannur vin­skapur, segir Hrefna.

Það sem núið kennir okkur 

„Nú á tímum Covid-19 höfum við sum hver haft tölu­vert meiri tíma en áður til þess að líta inn á við og reyna að bera kennsl á okkar eigin til­finn­ingar og átta okkur á því í leið­inni hvernig okkur líður og hvert við í raun viljum stefna. Þá er gott að hlusta á okkar innri rödd, sem er inn­sæið sjálft. Á sama tíma erum við nú að finna sterkt hversu mikið við viljum vera nálægt þeim sem okkur eru kær­astir og finnum í leið­inni hversu inni­halds­rík­ara líf okkar er vegna allra þeirra sem við erum að deila líf­inu með. Við söknum og fáum að hlakka til. Ham­ingjan er nefni­lega ekki það að vera laus við sorgir eða áhyggjur, heldur hvernig við tök­umst á við þau örlög sem við fáum í fangið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár