ESB leggur til metnaðarfyllri loftslagsmarkmið en Ísland

Losun Íslands á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum hefur auk­ist und­an­farin ár, þrátt fyrir mark­mið um sam­drátt. Evr­ópu­þingið vill ganga mun lengra en íslensk stjórn­völd í sam­drætti næstu 10 árin.

ESB leggur til metnaðarfyllri loftslagsmarkmið en Ísland
Lofts­lags­mót­mæli Evr­ópu­þingið hefur lagt til mun rót­tæk­ari mark­mið í lofts­lags­málum en rík­is­stjórn Íslands. Mynd: Davíð Þór

Ný drög að lofts­lags­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins kveða á um 65 pró­sent sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, miðað við árið 1990, fyrir árið 2030. Mark­miðið er tölu­vert hærra en það sem rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setti sér í stjórn­ar­sátt­mála, en þar er stefnt á 40 pró­senta sam­drátt.

Reuters fjallar um stefn­una sem fram­kvæmda­stjórn ESB lagði fram í mars, en Evr­ópu­þingið hefur nú lagt til að stefnan verði enn metn­að­ar­fyllri. Stefnir þingið á 65 pró­senta sam­drátt í losun, langt umfram þann 50 til 55 pró­senta sam­drátt sem fram­kvæmda­stjórnin lagði til. Í drög­unum er einnig lagt til bind­andi ákvæði um að hvert ein­asta af 27 ríkjum ESB þurfi að ná kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2050.

Rík­is­stjórn Íslands hefur þegar sett sér mark­mið um að ná kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2040. Markiðið um sam­drátt í losun miðað við árið 1990 gengur hins vegar ekki jafn langt og Evr­ópu­þingið stefnir að, en miðað er við 40 pró­senta sam­drátt í stjórn­ar­sátt­mála Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna. Þrátt fyrir mark­miðið hefur losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda auk­ist und­an­farin ár sam­kvæmt skýrslum Umhverf­is­stofn­unar til alþjóða­stofn­ana. 2018 er síð­asta árið þar sem upp­lýs­ingar liggja fyrir og hafði þá losun auk­ist frá fyrra ári.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar segja að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu þurfi að drag­ast saman um 7,6 pró­sent á hverju ári til 2030 til að halda hnatt­rænni hlýnun innan við 1,5 gráður á Celsius. Undir þeim mörkum væri hægt að kom­ast hjá verstu afleið­ingum hlýn­un­ar­innar.

„Vís­inda­menn tala um mörk plánet­unnar,“ segir sænski þing­mað­ur­inn Jytte Guteland, sem fer fyrir við­ræð­unum. „Ef við drögum ekki hraðar úr losun fyrstu 10 árin gætum við farið yfir þau mörk. Það er póli­tísk ákvörðun hvort við gerum það eða ekki.“

Óvíst er þó hvort stefna Evr­ópu­þings­ins verði sam­þykkt þar sem fram­kvæmda­stjórnin stefndi að væg­ari mark­miðum og ein­stök aðilda­ríki hafa viljað fara hægar í sak­irnar. Tékknesk stjórn­völd hafa kallað eftir því að mark­miðin verði sett til hliðar á meðan Covid-19 far­ald­ur­inn gengur yfir og pólsk stjórn­völd leggj­ast gegn því mark­miði að ESB í heild sinni nái kolefn­is­hlut­leysi árið 2050, sem þó er væg­ara en mark­mið þings­ins um að hvert ein­asta ríki innan þess verði skuld­bundið til að ná því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár