Þingmaðurinn Ólafur Þór sinnir læknisstörfum á ný vegna COVID-19

Sinnir verk­efnum á Landa­koti með­fram þing­störfum. Hafði sam­band við yfir­lækn­inn á sínum gamla vinnu­stað á mánu­dag og var kom­inn til starfa dag­inn eftir.

Þingmaðurinn Ólafur Þór sinnir læknisstörfum á ný vegna COVID-19
Kominn í slopp­inn Ólafur Þór seg­ist ánægður með að geta komið að gagni. Mynd: Úr einkasafni

Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna, hefur tekið til starfa sem læknir á Landa­koti. Hann er þar á sínum gamla vinnu­stað en Ólafur Þór er líf- og öldr­un­ar­læknir og starf­aði sem slíkur áður en hann var kjör­inn á þing, meðal ann­ars á Landkoti, og segir hann að það auð­veldi mjög að hefja aftur lækna­störf þar eð hann þekki þar hverja þúfu.

„Ég skráði mig í bak­varð­ar­sveit­ina. Núna þegar ekki eru reglu­bundnir þing­fundir þá get ég skot­ist hingað upp á Landkot og sinnt afmörk­uðum verk­efnum þar. Það er voða gaman og gott að geta hjálpað til,“ segir Ólafur Þór. Þau verk­efni sem hann sinni teng­ist COVID-19 far­aldr­inum en séu þó þess eðlis að hann sé ekki í beinum sam­skiptum við sjúk­linga. 

Sinnir læknastörfum meðfram þingmennsku

„Ég hringdi í yfir­lækn­inn hér á mánu­dag­inn og spurði hvort þau gætu eitt­hvað notað mig og það varð svo úr að ég koma hingað til í þessi verk­efni og það verður von­andi til þess að létta á þeim sem hér starfa,“ segir Ólafur Þór enn fremur.

Ólafur Þór sinnir sínum störfum á Alþingi áfram og segir að þau gangi fyrir en hann nýti þann tíma sem gef­ist til að hjálpa til uppi á Landa­koti. „Það er þing­fundur á morgun sem ég þarf að sinna en þau verk­efni sem ég hef tekið að mér hér eru þess eðlis að ég get þarf ekki að vera við þau í sam­fellu. Svo veit maður ekki hvernig þetta þró­ast, það fer allt eftir því hvernig þróun far­ald­urs­ins verður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár