Leggur til greiðsluhlé hjá Félagsbústöðum

Borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins vill að inn­heimtu­að­gerðir vegna félags­legra íbúða verði stöðv­aðar vegna far­ald­urs­ins og að gjöld vegna skóla- og frí­stunda­vistar barna verði ekki inn­heimt.

Leggur til greiðsluhlé hjá Félagsbústöðum
Kolbrún Bald­urs­dóttir Borg­ar­full­trúi kallar eftir greiðslu­hléi vegna far­ald­urs­ins.

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, vill að Félags­bú­staðir felli niður leigu í tvo til þrjá mán­uði vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Þá verði allar inn­heimtu­að­gerðir á vegum Félags­bú­staða stöðv­aðar.

Kolbrún lagði fram til­lögur þess efnis á fundi borg­ar­ráðs í gær, en afgreiðslu þeirra var frestað. Ein til­lagn­anna var jafn­framt að inn­heimta ekki gjöld fyrir skóla- eða frí­stunda­vist eða nokkuð annað sem börn hafa ekki getað mætt í að fullu vegna komu COVID-19. „Borg­ar­full­trúi telur að skóla- og frí­stunda­yf­ir­völd borg­ar­innar eigi að taka sjálf­stæða ákvörðun um að inn­heimta ekki gjöld fyrir skóla- eða frí­stunda­vist án til­lits til hvaða álit eða skoðun Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa á því, eða önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ef því er að skipta,“ segir í til­lög­unni. „Reykja­vík­ur­borg er stærsta sveit­ar­fé­lagið og eiga yfir­völd að hafa kjark til að ríða á vaðið með ákvörðun eins og þessa og gefa þar með gott for­dæmi. Börn eru ekki að full­nýta pláss sín vegna sam­komu­banns.“

Að öðru leyti snéru til­lögur Kol­brúnar að Félags­bú­stöðum, sem reka hátt á þriðja þús­und félags­legra íbúða fyrir leigj­endur sem ekki hafa tök á að sjá sér fyrir hús­næði vegna lágra launa, þungrar fram­færslu eða ann­arra félags­legra aðstæðna. Vill hún að leiga verði felld niður í tvo til þrjá mán­uði og jafn­framt skoðað að veita aukna greiðslu­fresti. „Fordæmi um aðgerðir af þessu tagi eru nú þegar til hjá öðru leigu­fé­lagi,“ segir í til­lög­unni. „Reikna má með að fjöl­margir eigi eftir að verða fyrir barð­inu af veiru­vánni og þá ekki síst fjár­hags­lega. Fólk verður fyrir tekju­missi á næstu vikum og mán­uðum vegna ástands­ins. Hjá Félags­bú­stöðum leigir við­kvæmur hópur og margir berj­ast í bökkum fjár­hags­lega. Í þeim aðstæðum sem nú ríkja er mik­il­vægt að létt verði áhyggjum af fólki eins og hægt er.“

„Í þeim aðstæðum sem nú ríkja er mik­il­vægt að létt verði áhyggjum af fólki eins og hægt er“

Auk þess lagði hún til að hætt verði að senda leigu­skuldir leigj­enda Félags­bú­staða til lög­fræð­inga í inn­heimtu og jafn­framt að þær sem nú þegar eru komnar í inn­heimtu­ferli verði frystar. „Vitað er að þegar skuld er komin í inn­heimtu hjá lög­fræð­ingum þá leggj­ast inn­heimtu­gjöld ofan á skuld­ina. Nú ríkir erfitt ástand hjá mörgum vegna COVID-19 og sýnt þykir að ein­hverjir munu missa vinnu sína eða mæta öðrum erf­ið­leikum sem veiru­váin veldur fólki og sam­fé­lag­inu. Mik­il­vægt er að fyr­ir­tæki eins og Félags­bú­staðir sýni sveigj­an­leika, lip­urð og mann­leg­heit og umfram allt að taka mið af þessum erf­iðu aðstæðum sem nú ríkja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár