Íslendingar hafa miklar áhyggjur af efnahagslegum áhrifum COVID-19

Hafa mun minni áhyggjur af smit­hættu eða heilsu sinni heldur en fjár­hags­legu tjóni.

Íslendingar hafa miklar áhyggjur af efnahagslegum áhrifum COVID-19
Fjár­hags­á­hyggjur umfram heilsu­fars­á­hyggjur Íslend­ingar hafa áhyggjur af efna­hag lands­ins en minni af eigin heilsu í tengslum við kór­óna­veiru far­ald­ur­inn. Mynd: Kristinn Magnússon

Mikill meiri­hluti íslend­inga ótt­ast að COVID-19 kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn muni hafa alvar­leg áhrif á íslenska efna­hag og þriðj­ungur þjóð­ar­innar hefur áhyggjur af því að verða fyrir alvar­legu fjár­hags­legu tjóni af völum útbreiðslu veirunnar. Að sama skapi hafa Íslend­ingar minni áhyggjur af því að smit­ast af veirunni eða að verða fyrir heilsu­farstjóni vegna hennar.

Þetta eru nið­ur­stöður könn­unnar MMR þar sem spurt var um áhyggjur fólks af áhrifum COVID-19 á efna­hag ann­ars vegar og heilsu­far hins vegar. Af þeim sem svör­uðu könn­un­inni kváð­ust 79 pró­sent hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur af áhrifum far­ald­urs­ins á íslenskan efna­hag. Aðeins 6 pró­sent höfðu litlar eða engar áhyggjur. Þá kváð­ust 34 pró­sent aðspurðra hafa miklar áhyggjur af því að þeir yrðu fyrir alvar­legu fjár­hags­legu tjóni af völdum far­ald­urs­ins. 43 pró­sent höfðu litlar áhyggjur af því. 

Færri hafa áhyggjur af því að smit­ast af veirunni sjálfir en 29 pró­sent sögð­ust hafa af því miklar áhyggjur. Á móti sögð­ust 35 pró­sent hafa litlar eða engar áhyggjur af smiti. 21 pró­sent svar­enda sögðu að þeir hefðu miklar áhyggjur af því að verða fyrir alvar­legu heilsutjóni af völdum COVID-19 kór­óna­veirunnar. 

Óveru­legur munur reynd­ist á afstöðu fólks eftir kyni eða eftir búsetu í könn­un­inni.  Svar­endur í yngsta ald­urs­hópnum reynd­ust hafa minni áhyggjur en aðrir af bæði því að smit­ast og af áhrifum veirunnar á íslenskan efna­hag en aðeins 15 pró­sent þeirra höfðu áhyggjur af eigin heilsu­fari eða efna­hag lands­ins. Elsti hóp­ur­inn hafði aftur á móti mestar áhyggjur af því að verða fyrir alvar­legu heilsu­fars­legu tjóni. 

Greina mátti mun á afstöðu fólks eftir stjórn­mála­skoð­unum en stuðn­ings­fólk Við­reisnar reynd­ist lík­leg­ast til að hafa miklar áhyggjur af áhrifum far­ald­urs­ins á íslenskan efna­hag, alls 78 pró­sent aðspurðra. Minnstar áhyggjur hafði stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins, 70 pró­sent, og Pírata, 63 pró­sent. Að sama skapi reynd­ist stuðn­ings­fólk tveggja síð­ast­töldu flokk­anna lík­leg­ast til að hafa áhyggjur af því að verða fyrir fjár­hags­legu tjóni, 45 pró­sent í báðum til­vikum. 

Stuðn­ings­fólk Vinstri-grænna var lík­leg­ast til að hafa áhyggjur af því að smit­ast af veirunni en 37 pró­sent þeirra sögð­ust hafa slíkar áhyggjur. Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Pírata höfðu af því minnstar áhyggjur, 22 pró­sent í til­viki Sjálf­stæð­is­flokks­ins og 20 pró­sent stuðn­ings­fólks Pírata.  

Könnunin var unnin dag­ana 18. til 20. mars og var svar­fjöldi 1.081 ein­stak­lingar 18 ára og eldri úr hópi álits­gjafa MMR. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár