Jón Þór gagnrýnir áform um veggjöld: „Þá er mér að mæta“

Þing­maður Pírata segir sam­göngu­ráð­herra nýta sér Kór­óna­veiruna til að koma á einka­fram­kvæmd í vega­kerf­inu sem fjár­mögnuð yrði með veggjöldum.

Jón Þór Ólafsson og Sigurður Ingi Jóhannsson
Jón Þór Ólafsson og Sigurður Ingi Jóhanns­son Þing­maður Pírata lofar harðri and­stöðu við frum­varp ráð­herra.

Sex sam­göngu­fram­kvæmdir verða boðnar út til einka­að­ila verði frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu­ráð­herra að lögum. Heimilt verður að fjár­magna þau að hluta til eða öllu leyti með veggjöldum.

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, gagn­rýnir ráð­herra harð­lega fyrir áformin í Facebook hópnum Pírata­spjall­inu. „Skammar­legt hjá sam­göngu­ráð­herra,“ skrifar hann. „Ef hann reynir að koma á veggjöldum vegna áhrifa Kór­óna­veirunnar þá er mér að mæta.“

Áætlað er að verk­efnin sex skapi allt að 4.000 árs­verk. Um er að ræða fram­kvæmdir við hring­veg norð­austan Selfoss og brú á Ölfusá, hring­veg um Horna­fjarð­ar­fljót, Axarveg, tvö­földun Hval­fjarð­ar­ganga, hring­veg um Mýrdal og jarð­göng í Reyn­is­fjalli og loks Sunda­braut.

„Ef hann reynir að koma á veggjöldum vegna áhrifa Kór­óna­veirunnar þá er mér að mæta“

Verk­efnin eru svokölluð sam­vinnu­verk­efni (e. public-pri­vate partners­hips) og verður inn­heimta veggjalda heimil til allt að þrjá­tíu ára. Veg­far­endur munu hafa val um aðra leið sem er gjald­frjáls. Í lok samn­ings­tíma telj­ast mann­virki eign rík­is­ins án sér­staks end­ur­gjalds.

Þá verður þeim aðila sem ann­ast gjald­töku heim­ilt að taka veð í öku­tækjum þeirra sem greiða ekki fyrir aðgang í göngin. Mun það veð ganga framar öllum öðrum skuld­bind­ingum sem hvíla á öku­tæk­inu, öðrum en gjöldum til rík­is­sjóðs. „Á grund­velli slíks lög­veðs má krefj­ast nauð­ung­ar­sölu á öku­tæki án und­an­geng­ins dóms, sáttar eða fjár­náms. Lögveðið fellur ekki niður við eig­enda­skipti,“ segir í frum­varp­inu.

„Það er ljóst er að jafn umfangs­miklar fram­kvæmdir, eins og sam­vinnu­verk­efnin boða, skapa mik­inn fjölda árs­verka, bæði hjá verk­tökum en ekki síður hjá ráð­gjöfum og hönn­uðum,“ segir Sigurður Ingi. „Öll verk­efnin fela í sér stytt­ingu vega ásamt því að stuðla að bættu umferð­ar­ör­yggi. Veg­a­stytt­ing minnkar ferða­tíma fólks og dregur úr flutn­ings­kostn­aði fyrir fyr­ir­tæki. Síðast en ekki síst felst í þessu umtals­verður umhverf­isá­vinn­ingur með minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og ann­arrar umferð­ar­tengdrar meng­unar. Sam­vinnu­verk­efnin bæt­ast við allar vega­fram­kvæmdir sem fjár­magn­aðar eru með hefð­bundnum hætti á fjár­lögum en í nýj­ustu sam­göngu­á­ætlun voru fram­lög aukin um fjóra millj­arða á ári næstu fimm árin miðað við fyrri áætl­anir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár