Fagna því að Háskóli Íslands hætti tanngreiningum

Háskóli Íslands hefur slitið samn­ingi við Útlend­inga­stofnun um tann­grein­ingar á fylgd­ar­lausum hæl­is­leit­endum. Þetta fyr­ir­komu­lag hefur verið umdeilt og for­seti Stúd­enta­ráðs skól­ans fagnar þess­ari ákvörðun, fram­kvæmdin hafi verið sið­ferði­lega röng.

Fagna því að Háskóli Íslands hætti tanngreiningum

Tann­grein­ingar á fólki, sem sækir um alþjóð­lega vernd hér á landi, verða ekki lengur fram­kvæmdar á vegum Háskóla Íslands, en skól­inn hefur gert slíkar grein­ingar fyrir Útlend­inga­stofnun um ára­bil. Þetta var sam­þykkt á fundi háskóla­ráðs HÍ í síð­ustu viku. Ekki liggur fyrir hvort stofn­unin hygg­ist fá aðra aðila til að gera grein­ing­arnar eða nota aðrar aðferðir til að greina aldur fólks, þegar vafi leikur á honum. Þátttaka háskól­ans í þessu hefur lengi verið gagn­rýnd, meðal ann­ars af Stúd­enta­ráði HÍ. 

„Afstaða Stúd­enta­ráðs hefur alla tíð verið hörð, þessi fram­kvæmd fylgir ekki ítr­ustu vís­inda­legum stöðlum, við teljum hana sið­ferði­lega ranga og við fögnum því að Háskóli Íslands hafi slitið samn­ingnum, “ segir Jóna Þórey Pét­urs­dóttir for­seti Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands. Ráðið hefur ítrekað kraf­ist þess að háskól­inn slíti samn­ingnum, meðal ann­ars á þeim for­sendum að það sé ekki í sam­ræmi við stefnu skól­ans að taka að sér slíkt hlut­verk í ferli fylgd­ar­lausra ung­menna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár