Áratugalangri sögu bæjarblaða lokið?

„Bæj­ar­blöð hafa alltaf verið mik­il­vægur hluti af bæj­ar­menn­ing­unni í Hafn­ar­firði og ég held að mörgum þætti leitt að sjá ef þau hyrfu.“ Þetta segir Olga Björt Þórð­ar­dóttir, rit­stjóri og útgef­andi Hafn­firð­ings, sem segir að rekstr­ar­grund­vell­inum hafi verið kippt undan blað­inu með ákvörðun Póstsins um að hætta að dreifa því.

Áratugalangri sögu bæjarblaða lokið?
Olga Björt Þórð­ar­dóttir Hún segir það þver­sögn að á sama tíma og rætt sé um að styrkja sjálf­stæða fjöl­miðla sé rekstr­ar­grund­vell­inum kippt undan þeim. Mynd: Ólafur Már Svavarsson.

Ára­tuga­langri sögu bæj­ar­blaða í Hafn­ar­firði lýkur hugs­an­lega í byrjun maí. Ástæðan er ákvörðun Póstsins um að hætta dreif­ingu fjöl­pósts á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar, en bæj­ar­blöð falla undir þá skil­grein­ingu. Olga Björt Þórð­ar­dóttir, rit­stjóri bæj­ar­blaðs­ins Hafn­firð­ings sem kemur út tvisvar í mán­uði, segir það þver­sögn að á sama  tíma og rætt sé um að styrkja sjálf­stæða fjöl­miðla sé rekstr­ar­grund­vell­inum kippt undan þeim.

Olgu var til­kynnt um þessa ákvörðun Póstsins í lok jan­úar, en í henni felst að dreif­ingu á ónafn­merktum fjöl­pósti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Reykja­nesi, Selfossi og Akranesi verður hætt. Ástæðan er sparn­aður og með breyt­ing­unni verða á fjórða tug starfa lögð niður.  „Ég fékk að vita með þriggja mán­aða fyr­ir­vara að fyr­ir­tækið myndi ekki lengur dreifa blað­inu mínu frá og með 1. maí, sem er mjög stuttur frestur í svona við­kvæmum rekstri,“ segir Olga. „ Þetta finnst mér stórfurðu­leg ákvörðun hjá rík­is­fyr­ir­tæki og ég set líka spurn­ing­ar­merki við að flokka bæj­ar­blað með rit­stjórn­ar­efni á sama hátt og dreifi­m­iða um aug­lýs­ingar og til­boð. Stærstu bæj­ar­blöð á land­inu eru á Suð­vest­ur­horn­inu.“

„Ég set spurn­ing­ar­merki við að flokka bæj­ar­blað með rit­stjórn­ar­efni á sama hátt og dreifi­m­iða um aug­lýs­ingar og til­boð“

Að sögn Olgu er Póst­dreif­ing eina fyr­ir­tækið sem dreifir slíkum pósti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Ég hef átt í við­ræðum við þau um áfram­hald­andi dreif­ingu, en það myndi kosta mig tals­vert meira. Auk þess yrði blað­inu ein­göngu dreift á heim­ili, en ekki í fyr­ir­tæki, eins og verið hefur fram að þessu. Ég hef ekki mögu­leika á að leita til­boða þar sem þetta er eina fyr­ir­tækið á þessu sviði. Þarna er rík­is­fyr­ir­tæki að hætta að veita til­tekna þjón­ustu, en það býður eng­inn sam­bæri­lega þjón­ustu í stað­inn.“

Skorar á bæjaryfirvöld í Hafnarfirði

Í leið­ara nýjasta  tölu­blaðs Hafn­firð­ings sem kom út í dag skrifar Olga að það skjóti skökku við að á sama tíma og fyrir liggi frum­varp um stuðn­ing  til einka­rek­inna fjöl­miðla kippi fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins stoð­unum undan sjálfri dreif­ing­unni. „Dreif­ingin er annað af meg­in­skil­yrð­unum sem þarf að upp­fylla til að eiga rétt á umræddum stuðn­ingi,“ skrifar Olga. „Rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur auk þess hríð­versnað á skömmum tíma með til­komu sam­fé­lags­miðla.“

Olga segir að bæj­ar­yf­ir­völd í Hafn­ar­firði hafi verið henni mikil stoð í þessum rekstri og að hún hafi verið í góðu sam­starfi við þau. „Ég skora á bæj­ar­yf­ir­völd að láta sig þetta mál varða og að eiga sam­tal við stjórn­völd.“

„Bæj­ar­blöð hafa alltaf verið mik­il­vægur hluti af bæj­ar­menn­ing­unni í Hafn­ar­firði “

Olga hefur  verið rit­stjóri Hafn­firð­ings frá árinu 2017 og eig­andi blaðs­ins síðan í byrjun síð­asta árs. Hún segir að bæj­ar­blöð hafi verið gefin út í bænum í ára­tugi, en nú sé Hafn­firð­ingur eina prent­aða blaðið sem eftir er. Að öllu óbreyttu legg­ist útgáfa þess niður í lok apríl  „Bæj­ar­blöð hafa alltaf verið mik­il­vægur hluti af bæj­ar­menn­ing­unni í Hafn­ar­firði og ég held að mörgum þætti leitt ef þau hyrfu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár